Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1889)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1271 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1271

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður hófst sjaldan fyrr en um miðjan vetur, og lokið fyrir sumarmál.
Þótti verra að fást við slíka vinnu í skammdeginu. Að sjálfsögðu
var byrjað á því verkefninu, sem mest lá á. Á flestum bæjum mun einhver
karl eða kona, hafa kunnað að vefa, og annaðist hann um vefnaðinn. Rakti,
setti, upp setti til, var það nú reyndar oftar kallað, og óf að mestu.
Sumsstaðar gripu þó fleirri heimamenn í að vefa, einkum unglingar. Þegar
búið var að setja vefinn til og allt komið í lag. Ekki veit ég hve
gömul börn voru þegar þau fóru að vefa. Man ekki einu sinni hve gamall
ég var, þégar ég byrjaði að fást við vefnað. Hafði svo mikið gaman
af því, og ég veit ekki nema ég hefði það enn. Man það eitt, að ég
var svo stuttur, að ég gat ekki setið í vefarabekknum. Varð að standa
og styðja rassinum við bekkinn, til þess að geta stigið sköftin. Sennilegt
þykir mér að börn hafi ekki verið yngri en 12 ára, er þau byrjuðu að vefa.
Hve lengi ofið var hvern daginn, fór eftir því, hve miklum
öðrum störfum vefarinn hafði að sinna. Væri afbæjarmaður fenginn
til að vefa, óf hann allan daginn, því önnur störf kölluðu ekki á hann.
Að sjálfsögðu voru afköst manna misjöfn við vefnað sem aðra vinnu.
En fleirra kom til greina. T.d. hvernig uppistaðan hélt (slitnaði
mikið eða lítið), hvort fyrirvafið var einlitt eða marglitt, svo og hve
gróf voðin var. Ég held að góð afköst hafi þótt 10-12 áln., við sæmilega
aðstöðu, 5-8 áln. var víst all algengt. Dæmi vissi ég til að stöku
maður komst allt upp í 20 áln., en slík dæmi voru fá. Engan
mann þekkti ég, sem ég get sagt að hefði vefnað beinlínis að atvinnu. Hinsvegar
bar oft við að farið var til nágranna, sem vantaði vefara, og ofið fyrir
hann, eða þá vefnaður tekinn heim, frá

p2
þeim, sem vantaði
vefara, vefstað eða hvorttveggja. Ókunnugt er mér hvað var tekið
fyrir að vefa, t.d. alin eða um verð á vaðmáli eða vefstað, enda ekki um
sölu á slíku að ræða mína minnistíð. Vefstóll: Ýmist
kallaður vefstóll eða vefstaður, þó oftar vefstaður, á uppvaxtarárum mínum.
Vefstaðasmið þekkti ég engan utan að einn maður mér kunnugur, sem
allt lék í höndunum á, smíðaði vefstað handa sjálfum sér. Flestir vefstaðir,
sem ég sá voru orðnir gamlir. Skeið: Einnig of kölluð
ritti. Allar vefjarskeiðar, sem ég sá voru útlendar. Heyrði
aldrei talað um íslenskar skeiðar eða neinn, sem smíðaði þær. 5 kvartil
mun hafa verið venjuleg lengd á skeiðum. Þegar talað var um tannafjölda
skeiðar, var miðað við tannafjölda í kvarteli, 60, 70, 80, 90 tannaskeiðum
man ég eftir. Líka man ég eftir garnrittum, er ekki viss um tannafjölda
í þeim, minnir helst að hann væri 120. Annars voru þessar skeiðar
aldrei kallaðar annað en garnritti. Tannafjöldi ekki nefndur. 60
tanna skeið þótti ágæt á tvöfaldan þráð, 70 og 80 á einfaldan, 90 tanna
þótti helst til þett, nema á fínasta þráð, og vel nothæf á garn, þó garnritti
þættu þar best. Vefjarskytta: Var smíðuð úr harðviði.
Í þá hlið skyttunnar, sem gatið var á, var greypt málm- eða beinplötu,
með gati jafnstóru og eins löguðu og gatið var á skyttunni. Var þetta
gert, til þess að fyrirvafið væri lengur að nudda skorur út frá skyttugatinu.
En þó fyrirvaf væri venjul. snúðlint voru furðu fljótt að koma skorur
undan því í málm og bein, auk heldur mýkra efni. Látúnsþynna var
utan um skytturnar, og neðan á hana var fest mjóum látúnsræmum, svo hún
væri hálli, rynni betur gegnum skilið. Spólur voru úr harðviði. Ekki
veit ég hvort þær voru tálgaðar eða renndar, sá þær

p3
aldrei smíðaðar.
Sumir höfðu álftaleggi fyrir spólur. Spóluteininn heyrði ég
aldrei kallaðan annað en spólutein. Spólurokkur: Hér,
á Álftarósi, og svo mun víðar hafa verið, var gamall rokkur notaður fyrir
spólurokk. Spýta tálguð til, öðrum enda hennar stungið inn í hnokkatréspípuna,
en spólunni smeygt uppá hinn endann. Spanstokkur: Það
orð þekki ég ekki. Spjálk var þetta áhald kallað hér. Spjálk
var smíðuð úr 2 eikar- eða brennirenningum, hvor rúml. þuml. á breidd og
hub. 1/4 þuml. þykkur. Lágu renningarnir á misvíxl, líklega fulla
1/2 alin, rönd við rönd, 3-4 göt voru þvert í gegnum báða. Götin
voru þetta mörg, svo auðvelt væri að stytta og lengja spjálkana. Og
í einu þeirra var járnteinn, er verkaði sem hjara þegar spjálkin var tekin
úr eða látin í voð. Ofan á spjálkinni voru 2 einskonar snerlar, sinn
á hvorum spjálkarhluta, er hvorum um sig var fest með og snúið á skrúfnagla,
og héldu þessir snerlar eða hvað ég á að kalla það, spjálkinni niðri, þegar
voðin var þanin. 2 koparoddar, mjóir, voru í hvorum enda spjálkarinnar,
sem stungið var í gegnum jaðra voðarinnar. Að leggja upp:
Hér um verð ég fáorður, svo óljóst er það í minni mínu. Eins og ég
mun áður hafa vikið að, í svari til Þjóðháttardeildarinnar, var farið eftir
gildleika og vigt þráðarins, þegar ákveða skildi hve margra lóða garn hann
væri, og út frá því hve mikið mætti leggja upp úr t.d. 1 rokksnældu. Væri
mér núna fengin þráðarkippa og spurður hve mikið mætti leggja upp úr þessu,
stæði ég tvímælalaust á gati. Að reikna í skeið: Vefarinn
vissi hve margar tannir voru í skeiðinni, einnig hve margir þræðir voru
í uppistöðunni, var þá auðvelt

p4
að finna út hve varpið
skildi vera mikið, svo voðin fengi hæfilega breidd.

Að reikna í vef:
Hefi engu við að bæta það er ég sagði hér að framan í kaflanum að
leggja upp. Rakgrind: Þar sem portbaðstofur voru, var
rakið í herbergi undir baðstofu, klampi negldur á bitanum, sem alltaf var
þvert undir lofti í miðju slíku herbergi. Boruð var eða tálguð hola
í klampinn og önnur í þykkan kubb, lausan, á gólfinu, fyrir endana á rakgrindarásnum,
en á honum snérist grindin þegar rakið var. Þegar búið var að reisa
grindina, voru hælatrén bundin föst, annað efst, hitt neðarlega eða neðst
á rakgrindina. Ef rekja varð í baðstofu, var skammbiti negldur á sperru,
í hæfilegri hæð. Svo farið eins að og að framan er lýst. Áður
en byrjað var að rekja, var mæld af einum hnyklinum, hér var alltaf rakið
úr hnyklum, sú lengd, sem vera átti á voðinni, og merki sett á þráðinn,
sem svo var aftur undinn upp á hnykilinn. Allir þráðarendarnir á
hnyklunum, sem venjulegast voru 5, teknir saman og settur á þá þverhnútur,
síðan smeygt á annan hælinn á neðra hælatrénu, svo byrjað að rekja. Fært
var til á grindinni, þar til merkið á þræðinum kom á efri hæl, þar sem
snúið var til baka. Hélt vefarinn þráðunum í vinstri hendi, en snéri
grindinni með hinni. Alltaf var fetinn látinn fara á grindina ofan
við næsta feta á undan. Aldrei ofan á það, sem komið var, því þá
var hætta á að mislengjur kæmu fram í uppistöðunni þegar farið var að vefa.
Á voru hælatrénu voru 2 hælar, skilið haft á milli þeirra. Þegar
komnir voru 100 þræðir var skilbandinu brugðið utanum þá, svo um næstu
100 þræði, og þannig koll af kolli, þar til rakningu var lokið. Þá
hnýtt að, og einnig bundið hinum megin við skilið. Þá var og

p5
bundið beggja megin
við skilið á efri hælnum. Með þessu fylgdist vefarinn með tölu þráðanna
meðan á rakningu stóð, og vissi hve margt var á að rakningu lokinni. Hnyklarnir
voru hver um sig hafðir í smádöllu, snældustólum, skálum oþul. Þar til
gerða smáhnúða var þráðurinn látinn renna í gegnum, svo síður kæmu á hann
snurður. Þegar vefarinn ar búinn að ganga frá skilunum, losaði hann
neðra hælatréð, tók skilið fram af hælunum, stakk annarri hendi í gegnum
það, greip utanum slönguna og dró í gegn, þannig myndaðist lykkja er sömu
hendi var smeygt í gegnum, aftur tekið utanum slönguna, og þannig haldið
áfram uns búið var að taka af grindinni. Með hinni hendi hafði vefarinn
stjórn á rakgrindinni. 1 maður, vefarinn, vann þetta verk.
Hafaldatré: Það leit út eitthvað þessu líkt (teikning). Fletirnir
eiga auðvitað að vera beinir, þó á þessarri teikninarnefnu séu þeir hlykkjóttir.
Utan um tippið, sem er á öðrum andanum var hafaldsaugað hnýtt. Þegar
búið var að hnýta hvert hafald, an það var gert með rifhnútum eða rembihnútum,
var það tekið af hafaldatrénu. Rakið var í höföld þannig, að mælt
var eftir hafaldi, hve hespan þurfti að vera stór, svo var hafður rúmstuðull
eða annar fastur hæll, ot vinstri hendin til að rekja á, en rakið með hægri
hendi. Þegar hespan þótti hæfilega stór var skorið út úr henni, og
þar með var hafaldaefnið tilbúið til hnýtingar. Miðhluti hafalds hét hafaldsauga.
Togþráður var hafður í höföld þar til á síðari árum heimavefnaðarins,
að eitthvað var notað netagarn. Vefjarkambur: Hann
mun hafa verið um eða rúmlega 5 kvartel á lengd, 6-7 þuml. breiður, með
sívölum tönnum, er festar voru í neðri

p6
hluta kambsins með
hub. 1/2 þuml. millibili. Eftir endilöngum efri hlutanum var skora,
sem tönnurnar gengu upp í, nema endatönnurnar. Þær gengu upp í gegnum
efri hlutann. Þegar láta átti í kambinn var efri hlutinn tekinn af.
Vitað var um tölu fetanna í slöngunni, tannanna í kambinum, og með
hliðsjón af hvorutveggja ákveðinn fetafjöldi í hverri tönn. Þegar
búið var að láta í kambinn, voru höföld og slagborð tekin úr vefstólnum,
kamburinn bundinn við stólpana, er héldu uppi trjánum, sem slagborðið
hékk á og völtunum er höföldin héngu í. Skaftið tekið úr þráðarrifunum
og smeygt í gegnum enda slöngunnar og þráður (veit ekki nafn á honum) dreginn
í gegnum slönguna og bundinn fastur um báða enda skaftsins þannig að skilið
væri á milli þráðarins og skaftsins. Nú var rakið smátt og smátt
úr slöngunni, skaftið sett yfir þráðarbómuna, látið á sinn stað í þráðarrifnum,
krögunum á rifnum ýtt yfir endana á skaftinu, og þar með var það fast.
Á krögunum voru járn, sem lágu á rifnum og héldu þeim föstum þegar eitthvað
var komið á rifinn. 2 menn unnu þetta verk, annar vatt uppá rifinn,
hinn hélt þétt í slönguna og rakti úr henni jafnóðum og undið var á rifinn.
Þegar búið var að vinda á rifinn, var kamburinn tekinn af, skilsköftin
sett í skilið, og bundin við bómuna og skorið út úr endanum á slöngunni.
Annars voru skilsköftin ekki bundin við bómuna, nema á meðan verið
var að setja til. Næst lá fyrir að draga í höföld. Voru
þau nú hengd upp á sinn stað, voðarbóman tekin af, kassi eða koffort látið
framan höföldin, til að stigja á, þar settist verfarinn, taldi 25 höföld
af fremsta hafaldakambi og hélt þeim á milli þumalfingurs og vísifingurs
vinstri handar, af næsta kambi lét hann höföld á milli vísifingurs og löngutangar,


p7
af þriðja kambi lét
hann höföld á milli löngutangar og baugfingurs, og af fjórða kambi á milli
baugfingurs og litlafigurs. Þegar búin voru þessi 25 höföld af fremsta
kambi, var búið að draga í höföldin 100 þræði. Tekið var dálítið í þessa
100 þræði og hnýtt á þá lykkja. Þá var byrjað á nýjan leik á sama
hátt og lýst er hér að framan, alltaf byrjað á fremsta kambi og endað á
aftasta, þannig haldið áfram uns búið er að draga í höföldin. Annar maður,
oft unglingur, stóð fyrir aftan þráðarbómuna og rétti vefaranum þræðina.
Og þá er komið að því að draga í skeiðina. Var nú bundið
snæri, sinn spottinn um hvorn enda efri hafaldaskaftanna og endarnir á
hvorum um sig hnýttir saman. Lykkjurnar, sem þannig mynduðust látnar
ná ofanundir neðri hafaldasköftin, og í þær var skeiðin látin liggja flöt.
Fyrirfram var ákveðið verpið, sem vera átt ií voðinn. Dregið
var í með krók, er annaðhvort var úr málmþynnu eða tré. Byrjað var
að taka þráð úr fremsta kambi, þá næsta, svo næst næsta og endað á aftasta.
Þá aftur byrjað á fremsta kambi, og svo áfram alltaf í sömu röð.
Með þessu var öruggt að aldrei færi nema einn þráður af sama hafaldakambi
í hverja tönn.

Þegar búið var að
draga í skeiðina var slagborðið látið upp og skeiðin í það, og bóman sett
á sinn stað. 3 snæri bundin bæði á voðarrifinn og voðarskaftið, 1
á miðju hin á endana á rif og skafti. Svo hnýtt fram (uppistaðan
bundin á voðarskaftið), byrjað á miðju skafti, þá á endunum, og svo áfram.
Þegar búið var að hnýta fram, voru sköftin krækt upp. Á litlu
sköftum voru krókar bæði að ofan og neðan. Á stóru sköftum aðeins
að ofan. Keðjubútar, heldur mjórri en nautabönd, voru höfð á milli
stóru skafta og litlu, og frá litlu sköftum upp í höföld. Að þessu
loknu voru snærin undin

p8
upp á rifin þar til
uppistaðan þótti hæfilega strengd. Svo var byrjað að vefa. Það mun
hafa verið kallað að draga fyrir, að fara með fyrsta fyrirdráttinn í gegnum
skilið. Að vinda uppistöðu í rif, láta í kamb, draga í höföld
og skeið, hnýta fram og draga fyrir, var einu nafni kallað, að setja til
vef. Þegar komið var nægilegt pláss fyrir spjálkina, var
hún látin á voðina, og meðan á vefnaðinum stóð, alltaf færð þegar komnir
voru 2-3 þuml. frá henni að uppistöðu. Gæta varð þess, ef þráður
slitnaði, að bæta hann strax, væri ofið með einn eða fleirri slitna þræði
varð voðin gölluð. Þegar svo langt var komið vefnaði voðar, að uppistöðurifurinn
var orðinn ber, voru snæri látin á hann og uppistöðuskaftið á sama hátt
og í upphafi voru sett á voðarrifinn og voðarskaftið. Ofið var þar
til uppistöðuskaftið var komið svo nærri höföldunum, búið að taka skilsköftin
og voðarendinn það nærri slagborðinu, að ekki var lengur hægt að stíga
skil til að skjóts skyttunni, var varpað yfir voðarendann, uppistaðan klippt
sundur, svo sem 1 þuml. frá voðarendanum. Það sem eftir var af uppistöðu,
þegar vefnaði voðar lauk, var kallað, afvikur. Notað sem saumgarn
við bætingu á flíkum. Að varpa fyrir enda voðar og klippa afvikur
frá var kallað að fella af vef. Þvottur og þóf: Blandað
var saman keytu, vatni og þvottarefni. Þessi blanda hituð og hellt
í bala, voðin látin þar ofaní og þvegin. Balinn með öllu sem í honum
var, borinn út fyrir bæjardyrnar, báðir endar voðarinnar teknir uppúr og
vafðir um járnkarl, sem settur var þversum innan við dyrastafina, og haldið
þar. Voðin var svo dregin tvöföld upp úr balanum, og öðrum járnkarli
eða sterku priki smeygt í lykkjuna. Hélt karlmaður þessu járni eða
priki og snéri með því upp

p9
á voðina, og teygði
hana við og við. Þannig var haldið áfram þar til voðin var öll komin
í hnúta., þá voru járnin losuð, voðin borin þangað sem átti að þæfa hana,
og snúningurinn tekinn af henni. Hér var þæft í baðstofunni. Bletturinn
sem þæfa átti á, vandlega þveginn og raðað kringum hann kistlum og koffortum.
Einhver heimamanna (karlmaður) þæfði. Fékk hann að launum þófaraköku,
sem var venjuleg glóðarbökuð kaka, en með, auk smjörs, magál, lundabagga
eða öðru slíku góðgæti ofaná. Þófarinn var á nærklæðunum einum, velti
voðinni fram og aftur, tróð á henni og stappaði. Við og við var voðin
hrist upp meðan á þófi stóð. Gerðu það 2 konur, hvor um sig tók í
jaðra voðarinnar, sinn með hvorri hendi, höfðu 2-3 metra bil á milli sín
og kipptu snöggt út til beggja hliða nokkrum sinnum. Urðu að vera
vel samtaka. Teygðu voðina svo og létu hana falla á þæfingarblettinn
aftur jafnóðum og búið var að hrista hana. Þegar voðin var talin
fullþæfð var hún vafin upp á rúmfjöl, svo fast og slétt, sem tök voru á,
síðari endinn saumaður fastur. Látin svo undir þunga kistu, grjót
látið ofaná kistuna, og þar höfð, ég man ekki hve lengi, þar til hún var
þurrkuð.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna