Ull

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1907)
Object-related numbers
Museumnumber a: 7645 "Museumnumber b": 1966-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 7645

p1
Ull og tóvinna 3.
Þessari skrá er þið sendið mér nú, er fljótsvarað, því á mínu heimili,
var enginn vefstóll til. Fyrst þegar ég fer að muna, er ég man vel
eftir mér 4 ára, og jafnvel fyrr. En ég man það svo vel að bræður
mínir, sem upp komust voru mikið eldri en ég, áttu buxur úr heimaofnu vaðmáli,sem
móðir mín hafði ofið. En hún hafði kunnað bæði vaðmálsvefnað, einskeftu
og líka klæðisvefnað, og man ég að hún átti peysuföt sem hún hafði ofið
í sjálf, með klæðisvefnaði, og saumaði hún þau líka sjálf að öllu leyti
í höndunum, því þá átti hún enga saumavél. Þóttu þau vera listaverk.
En vefstóllinn lét mamma í burtu þegar hún varð ekkja eða skömmu
eftir að ég fæddist. Því bæði var, að þá hafði hún engan tíma til
að vefa, og svo var þá farið að hætta að vefa heima á flestum heimilum,
og allstaðar þegar ég fór að fara nokkuð á bæi. Ég sá því aldrei
vefstól, og get ekki lýst þeim á nokkurn hátt, hvað þá teiknað. Þegar
ég fer nokkuð að stálpast, fóru að koma prjónavélar mjög víða, bæði hringprjónavélar
(sokkavélar) og líka stærri vélar, sem prjónað var á nærföt og peysur,
en efni í ytri föt, karlmannaföt, var þá allt keypt í búðum. Þá fóru
líka margir að senda ull til norskra verksmiðja, til að fá reglulega fín
efni í spariföt. Þótti það mikið fallegri voðir en þær sem íslenskar
verksmiðjur unnu. Man ég til dæmis að mamma sendi mjög vandaða ull
til Noregs árið áður en ég fermdist og fékk hún úr henni ljósgrænt klæði
afar fallegt sem

p2
var notað í fermingarkjól
á mig. Eftirfermingarkjól, sem kallað var. Var hann mjög fallegur,
mikið útsaumaður og átt ég hann lengi. Þegar ég var krakki, voru
svo miklar vegalengdir í Vopnafirði, að maður ferðaðist svo lítið, fyrr
en ég var farin mikið að stálpast, en þá held ég, að mér sé óhætt að fullyrða,
að hvergi hafi verið ofið heima. Og hafa þá vefstólar, ef einhversstaðar
verið til, verið geymdir í ruslakompum, og ekki verið hafðir á glámbekk.
Ég heyrði talað um aþð að oftast hafi það verið húsbóndinn eða húsfreyjan,
sem ófu fyrir sín heimili, en stundum muni þó vinnukona eða vinnumaður
á heimilinu hafa haft þetta starf með höndum. Líka heyrði ég talað um að
einstöku menn eða konur, þó oftast karlmenn, hafi haft atvinnu af að fara
á milli bæja og vefa fyrir fólk. En ekki man ég að ég heyrði um nokkurn
sérstakan kauptaxta fyrir það verk. Alltaf heyrði ég, að það hefði
verið siður á meðan allt var ofið á heimilunum, að setja upp vef strax
oð afloknum hauststörfum, og lögð áhersla á að ljúka þeim vef sem fyrst.
Var byrjað á fyrir jól, að hausti, fella vefinn fyrir jól, og eins
að ljúka öllum vefnaði fyrir síðasta vetrardag. Það heyrði ég talað
um að vanalegt hefði verið að sá eða sú, sem óf hefði alltaf aðeins setið
við það milli mála. Ekki get ég sagt um hvað þóttu góð afköst í vefnaði,
en að sjálfsögðu fór það víst mikið eftir hvaða gerð vefnaðar var ofin.
Ég heyrði talað um að það hefði verið mikið seinlegra að vefa ..vefnað,
salonsvefnað, t.d., heldur en vaðmálsvefnað eða klæðisvefnað. En
ákveðin greiðsla held ég

p3
að ekki hafi verið
algeng, en aðeins farið eftir rausn og höfðingsskap þess, sem unnið var
fyrir. Þó má vel vera að svo hafi verið sumsstaðar.
Börn byrjuðu víst stundum að vefa strax um fermingaraldur, og jafnvel fyrr
stundum. Þeir sem höfðu atvinnu af því að vefa fóru víst oftast á
milli bæja, en tóku ekki heim til sín nema kannske í örfáum tilfellum.
Vefstað heyrði ég stundum kallaða vefstaði. Þó oftar vefstól. Víst
heyrði ég talað um gömlu vefstólana, kljásteinsvefstólana. En auðvitað
sá ég þá aldrei, en heyrði að mikil framför hefði það verið talin, þegar
hinir vefstólarnir hefðu komið. Ég hef heyrt sagt að kljásteinsvefstólar
hafi verið til á einstaka bæ fram yfir miðja 19. öld. Veit samt engar
sönnur á því, en er þó ekki grunlaus um að svo hafi verið sumsstaðar. Það
voru margir fastheldnir í það gamla fyrr á tímum. Hvort einstakir
hlutar slíkra vefstóla er ennþá til, veit ég ekki, en býst þó ekki við
að svo sé. Ég hygg að hraðskyttuvefstólar hafi verið alsstaðar á
seinni hluta síðustu aldar, og allt þar til heimavefnaður lagðist niður.
Veit það þó ekki með vissu, því eins og ég hef sagt, sá ég aldrei
vefstól.

Vefjarskeiðar heyrði
ég talað um að stundum hefðu verið heimasmíðaðar, vor þær víst aðallega
úr hvalskíðum eða harðviði. Við stærð vefjarskeiða var víst miðuð
tannafjölda í ákveðinni lengd, kvartel. Ég heyrði talað um bæði 80
tanna skeið og 60 tanna. En auðvitað veit ég ekkert um þetta, nema
það sem ég heyrði menn tala um, bæði mömmu mína, og svo aðra.

p4
Það heyrði ég, að
ekki höfðu öll heimili átt vefstól, og hefðu menn þá stundum lánað vefstól
þeim sem engan áttu. Vefjarskeiðar heyrði ég að hefðu vanalega verið
um 5 kvartel. Spóluteinninn í skyttunni heyrði ég að var oftast nefndur
níll. Tréspólur heyrði ég, að hefðu verið vanalega renndar, ef þær
voru úr tré. Fiskroð heyrði ég aldrei talað um að hefði verið notað
til að spóla á, en ég veit svo lítið um allt þetta efni, að það er ekki
að marka. Ég heyrði mömmu stundum tala um, ef eitthvert dálítið vandasamt
verk, að það þyrfti að reikna það út eins og að reikna út í vef. Ég
heyrði oft talað um uppistöður í vef og heyrði það ýmist kallað uppistöðu
eða varp. En ívafið aðeins ívaf eða fyrirvaf. Áhaldið sem uppistaðan
var rakin á heyrði ég kallaða rakgrind. En tréð sem skilhælar voru
festir á var víst kallað hælatré. Og ég býst við að rakningsgrindur
hafi verið til alsstaðar, þar sem vefstólar voru til. Veit það þó
ekki með vissu, því eins og ég hef sagt, þá veit ég svo lítið um þetta
efni. Já, vel á minnst, þið spyrjið hvað börn hafi verið gömul þegar farið
var að láta þau hjálpa til við vefnað. Þau voru víst oft mjög ung,
þegar þau voru látin fara að rétta í höföld, sem kallað var. Til
dæmis man Friðrik, bróðir minn, sem er nærri 5 árum eldri en ég, eftir
því að hann var látinn rétta í höföld, en það er líka allt og sumt, sem
ég veit um það mál.

p5
Rakningsstokka hef
ég heyrt talað um. Voru þeir með hnyklahólfum, hef ég heyrt talað
um, og voru þeir víst til á flestum heimilum. Þeir voru víst víða
kallaðir hólfakassar. Hvaða ílát voru notuð, ef þeir voru ekki til,
veit ég ekki. Ég heyrði talað um að sumsstaðar hafi verið rakið á
rúmstólpum í baðstofum. Þeir voru þá úr renndu tré. .... hugsa
ég að aldrei hafi verið rakið. Eða ég heyrði aldrei talað um það.
Líka heyrði ég að stundum hefði verið rakið á veggjarhæla, en ég
veit ekkert um hvernig þeir voru. Hafaldaefni mun oftast hafa verið
unnið heima. Var það víst oftast unnið úr togi, og var hann soðinn
í tólg, til að gjöra hann snöggan. Ég heyrði aldrei að hann hefði
verð sviðinn, en það má samt vel vera að það hafi stundum verið gjört.
Að draga í höföld og skeið var víst víðast kallað að festa upp vef.
Það var kallað hafaldakambur, áhaldið sem notað var til að halda
höföldunum stöðugum. Þegar voðin var búin, var það kallað að fella
vefinn. Þráðarendar sem af gengu, heyrði ég kallaða afvikur, en þó
oftar hrafnabuxur. En ekki veit ég hvað var gert við þá. Þá
hætti ég, veit hvort sem ekkert um þetta efni. En ef til vill gæti
ég svarað einhverju örðu, ef um væri spurt. En þá er listinn búinn.
Er listann hef ég lokið við - ég löngum best það finn - að ótalmargt ég
ósagt hef - en ekki meira um sinn. Annars á ég afar bágt
með að skrifa, og ætti því ekki að vera að bjóða að skrifa meira. Sigurlaug
Guðmundsd.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ull
Keyword:
Tóvinna