Kommóða
1855 - 1920

In preservation at
Akranes Folk Museum
Kommóða ,frá 19.öld. Átti Ragnhildur
Ísleifsdóttir (f.21 feb.1841,d.20 ág.1922) ,húsfreyja í Nýjabæ í Krísuvík,
þá gift Þórhalli Þóhallssyni og síðar á Meiðastöðum í Garði og á
Innra-Hólmi í Innri-Akraneshreppi (frá 1883) þá gift seinni manni sínum
Árna Þorvaldssyni (f.24 maí ,d.3 maí 1901) bónda og oddvita. Um uppruna
kommóðunar er ekki vitað nánar ,en hún var aflögð og hætt að nota hana
þegar gefandi hirti hana á Innra-Hólmi og fékk Jón Sigurðsson smið á Vindhæli
á Akranesi til að lagfæra hana. Kommóðan er úr eik og furu. Fjalir í baki
og skúffur (4) eru úr eik ,nema forstykkin úr furu, þó spónlögð að innanverðu.
Vantar botn í eina skúffu.Tvær efstu skúffur og neðsta skúffan eru skráarlæstar
og forstykki efstu og neðstu skúffu eru yfirfelld. Allar höldur eru frá
seinni tíma (klastur).Tveir koparlyklar á lyklahring fylgja. Kommóðan er
í raun jafnframt snyrtiborð því í efstu skúffu hafa verið innréttuð 9 hólf
, eitt stórt fyrir miðju með spegli (sporöskjulöguðum) á innaverðu loki
og 4 hólf til hvorrar handar með spónlögðum eikarlokum, birkispónn með
innfelldum mahogny-skreytingum. Kommóðan hefur að öllum líkindum verið
ómáluð í upphafi ,en síðar bleikmáluð og síðast í brúnum lit.Gef: Jón Mýrdal
Sigurðsson fv.skipasmiður, Stekkjarholti 20 á Akranesi
Main information
Dating
1855 - 1920
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1990-37-1
Place
Staður: Innri-Hólmur, 301-Akranes, Hvalfjarðarsveit, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Kommóða
Place of origin
64°18'19.9"N 21°55'48.9"W