Alþingi

Alþingi á eða hefur í langtíma varðveislu um 200 listaverk eftir tæplega 70 listamenn. Þar af eru um 60 portrettmyndir af fyrrverandi þingforsetum og þingmönnum eftir tæplega 30 listamenn, flesta íslenska. Til viðbótar eru um 100 olíumálverk og grafíkverk ásamt nokkrum brjóstmyndum og listmunum sem Alþingi hefur fengið að gjöf. Verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur hjá Alþingi. Flutningur á gögnunum yfir í Sarp hófst í janúar 2018 og stefnt er að því að skrá til að byrja með öll portrettmálverk af þingmönnum og fyrrverandi forsetum Alþingis og listmuni sem Alþingi hefur fengið að gjöf.