The Sundry Collection
Sverrir Hermannsson húsasmíðameistari fæddist 30. mars 1928. Hann var Innbæingur en það kallast þeir sem eru fæddir og uppaldir í gamla innbænum á Akureyri. Sverrir kom víða við á sinni löngu og farsælu starfsævi en þekktastur var hann fyrir endurbyggingu og viðgerðir gamalla húsa. Sverrir fór aldrei leynt með söfnunaráhuga sinn og í gegnum líf sitt og starf við að gera upp gömul hús og kirkjur safnaði hann allt að þúsund hlutum hvert ár, í heil fimmtíu ár. Eyjafjarðarsveit fann safninu stað í Sólgarði sem átti vel við þar sem Sverrir hafði á uppvaxtarárum sínum dvalist um lengri eða skemmri tíma á ýmsum bæjum þar í nágrenninu.
Smámunasafnið eins og það hefur verið nefnt, hefur þá sérstöðu að vera ekki safn einhverra ákveðinna hluta heldur allra mögulegra hluta. Hversdagslegir hlutir eru þar mitt á meðal afar óhefðbundinna hluta. Því hefur safnið stórkostlegt menningarlegt gildi fyrir okkur og komandi kynslóðir. Smámunasafn Sverris Hermannssonar opnaði 26. júlí 2003. Það voru myndlistarmennirnir Þórarinn Blöndal og Finnur Arnar Arnarsson sem höfðu veg og vanda af uppsetningu safnsins og hefur þeim tekist einstaklega vel að varðveita sérkenni þess, eins og þau birtust áhorfandanum meðan það var enn í vörslu safnarans sjálfs.
