Flæði - Sólon Íslandus
Hér getur að líta verk eftir Sölva Helgason (1820-1895) sem sýnd eru á sýningunni Flæði á Þjóðminjasafni Íslands (2.6.2026-17.1.2027). Þar eru valin verk úr safneigninni sett í samhengi við nýja plötu hljómsveitarinnar Mógils en innblástur tónlistarinnar er fenginn úr myndum og textum Sölva. Mógil skapar tónlist/hljóðheim á mörkum klassíkur, þjóðlagatónlistar, djass og tilraunatónlistar.
Verk Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus hafa alla tíð notið aðdáunar og þau hafa fléttast við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét vistarbönd og ýmis boð og bönn samfélagsins ekki hafa áhrif á líf sitt. Má segja að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og ýmislegt krot renna saman í frumlegan myndheim.
Here you can see works by Sölvi Helgason (1820-1895) from the exhibition Flow at the National Museum of Iceland (2.6.2026-17.1.2027). Where selected works from the collection have been placed in the context of a new album by the band Mógil, whose music is inspired by Sölvi's images and texts. Mógil creates music/soundscapes on the border between classical, folk music, jazz and experimental music.
Sölvi’s works have always been admired, and they are intertwined with his own story, the folk artist who did not let work restrictions and various social prohibitions affect his life. It can be said that Sölvi’s artistic works flowed between periods and art forms, flow being a key concept in his art, in which figurative images, sketches, texts and various scribbles merge into an original visual world
Objects
19
Related Objects












