Skyr fyrr og nú
Þjóðminjasafn Íslands - spurningaskrá 147
Skyr fyrr og nú
Safnnr. 2026-4
Þjóðfræðingar við Háskóla Íslands í samstarf við Matís og Þjóðminjasafnið safna nú heimildum um skyr, skyrgerð og skyrát í gegnum tíðina. Þessari spurningaskrá er ætlað að safna minningum, frásögnum, viðhorfum og tilfinningum sem tengjast skyri. Ef þú vilt deila með okkur þekkingu þinni og reynslu værum við þakklát fyrir framlag þitt. Svör mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg og byggð á dæmum úr eigin lífi og reynslu. Svör þín munu síðar birtast nafnlaust í menningarsögulega gagnagrunninum Sarpi (www.sarpur.is). Athugaðu að þér er alltaf velkomið að sleppa spurningum og svara eingöngu þeim sem höfða til þín. Getir þú ekki lokið við að svara er hægt að ýta á „vista“ neðst í svarviðmótinu, þá færðu tölvupóst með hlekk og getur haldið áfram síðar.
Questions and Answers





