Eins og hundur og köttur - Spurningaskrá um hunda, ketti og lífið á heimilinu
Þjóðminjasafn Íslands - spurningaskrá 144
Eins og hundur og köttur: Spurningaskrá um hunda, ketti og lífið á heimilinu
Safnnr. 2026-1
Þjóðminjasafn Íslands safnar nú frásögnum um hunda og ketti á íslenskum heimilum. Markmiðið er að safna sögum, reynslu og hugleiðingum um dýr sem deila heimili og daglegu lífi með fólki og móta með því hversdaginn.
Heimildafólk er hvatt til að svara eins ítarlega og það treystir sér til. Ekki þarf að svara öllum spurningum heldur getur fólk sleppt þeim sem það tengir ekki við.
Svörin mega að sjálfsögðu vísa til liðinnar reynslu af því að búa með hundi eða ketti.
Ef þú getur ekki lokið við að svara er hægt að ýta á „vista“ neðst í svarviðmótinu til að vista svör þín, þá færðu tölvupóst með hlekk og getur haldið áfram síðar á eigin hraða.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við þjóðháttasafn Þjóðminjasafnins í gegnum netfangið: thjodhattasafn@thjodminjasafn.is
Titilmynd skráarinnar: LJósm. Björn Magnús Arnórsson. Safnnr. BMA-2674
Keywords
Questions and Answers
