Meðganga og mæðravernd - Meðganga, fæðingar og fyrstu mánuðir barnsins
Þjóðminjasafn Íslands - Spurningaskrá 143 a.
Meðganga og mæðravernd
Nr. spurningaskrár 2025-2
Yfirskrá: Meðganga, fæðingar og fyrstu mánuðir barnsins - Spurningaskrá 143.
Þjóðminjasafn Íslands safnar nú upplýsingum um meðgöngu, fæðingar og fyrstu mánuði barnsins. Sambærileg spurningaskrá var send út frá safninu árið 1963 en ljóst er að hefðir og verklag tengt meðgöngu og barneignum hafa breyst á undanförnum 60 árum.
Viljir þú deila með okkur viðhorfum þínum, minningum og reynslu værum við afar þakklát. Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis dæmi af þinni reynslu. Þú getur einfaldlega sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum. Öll svör bæta við þekkingu á þessu sviði
Ekki er sérstaklega verið að safna tölulegum upplýsingum, og því er ekki spurt um fjölda barna, aldur né nákvæmt fæðingarár. Fólk ræður sjálft hvort það svarar út frá einni ákveðinni meðgöngu, eða út frá mörgum. Velkomið er að skrifa um fleiri en eitt barn í hverju svari.
Athugaðu að þú getur alltaf dregið svör þín til baka með því að hafa samband við þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins í gegnum netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Með kærri þökk fyrir þitt framlag til þessa samfélagslega mikilvæga verkefnis,
Helga Vollertsen, sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands
Eva Þórdís Ebenezerdóttir, þjóðfræðingur
Sigulaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur
Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins, netfang: thjodhattasafn@thjodminjasafn.is
Titilmynd skráarinnar: Ljósm. Sigfús Eymundsson. Safnnr. Mms-12360-B
Keywords
Questions and Answers
