Jarðhræringar á Reykjanesi. Viðhorf og upplifanir.

Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Grindavíkurbæ og Minja- og sögufélag Grindavíkur safnar nú upplýsingum um viðhorf og upplifanir fólks af jarðhræringum á Reykjanesskaga sem staðið hafa yfir frá árinu 2019. Þá er sérstaklega horft til tímabilsins fyrir og eftir rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023. Ljóst er að atburðirnir í Grindavík frá haustinu 2023 eru sérstæðir í sögu Íslands. Leitast er við að safna upplifun fólks af jarðhræringum sem krefjast rýmingu heils bæjarfélags og sér ekki enn fyrir endann á þeim atburðum. Viljir þú deila með okkur viðhorfum þínum, minningum og reynslu erum við afar þakklát. Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg og taktu endilega dæmi af eigin reynslu. Öll svör bæta við þekkingu á þessum atburðum. Athugaðu að lesa vel spurningar 1 og 2 um notkun upplýsinga svo þú getir gefið upplýst samþykki þar að lútandi. Svör við spurningaskránni verða lokuð til áramóta 2030-2031 en munu í framhaldinu birtast nafnlaust í menningarsögulega gagnagrunninum www.sarpur.is. Óski rannsakendur eftir lesaðgangi að gögnunum fyrir þann tíma skal óskað eftir því hjá Þjóðminjasafni Íslands sem metur hverja beiðni fyrir sig. Athugaðu að þetta er löng spurningaskrá. Þér er alltaf velkomið að sleppa spurningum og svara einungis þeim sem höfða til þín. Ef þú getur ekki lokið við að svara er hægt er að ýta á „vista" neðst í svarviðmótinu til að vista svör þín, þá færðu tölvupóst með hlekk og getur haldið áfram síðar á eigin hraða. Athugaðu að þú getur alltaf dregið svör þín til baka með því að hafa samband við þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins í gegnum netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is. Við minnum á hjálparsíma Rauða krossins 1717.
Questions and Answers