Hópmynd, óskilgreinanleg

1921
In preservation at
National Museum of Iceland
Stúdentar 1921 Ljósm. 16x22,5 cm, límd á stærra spjald, í 5,3 cm br. ramma: Stúdentar 1921. Nöfn skráð á bakhlið myndar. 6. bekkur 1920-21. Myndin er tekin í síðustu kennslustund vorið 1921. (Sjá Saga Reykjavíkurskóla III:71). Bogi Ólafsson (1879-1957) kennari, Pétur Gíslason (1900-1992), bróðir hans Jakob Gíslason (1902-1987), Sigurður Ólafsson (1901-1970), Gunnar Bjarnason (1901-1987), Adolph Bergsson (1900-1948), Óskar Þórðarson (1897-1958), Einar Olgeirsson (1902-1993), Magnús Ágústsson (1901-1987), Helgi P. Briem (1902-1981), Torfi Bjarnason (1899-1991), Kjartan Sveinsson (1901-1977), Einar Ástráðsson (1902-1967), Þorkell Þorkelsson (1899-1963), Richard Kristmundsson (1900-1951), Karl Þorsteins (1901-1987), Gunnar Árnason (1901-1985). - - - "Þeir sem ég veit eitthvað um eru: Bogi Ólafsson kennari, Agnar sonur hans gaf út Mánudagsblaðið, er frá Sumarliðabæ í Rangárvallasýslu, þekkt ætt, 3 bræður miklir kallar. Jakob Gíslason var held ég rafmagnsverkfræðingur. Var held ég hátt settur. Sigurður Ólafsson verkfræðingur. Gunnar Bjarnason, varaskólastjóri Vélstjóraskólans, bróðir bókarans feita í Verzló. Adolph Bergsson ættaður frá Flateyri. Kona hans hálfsystir Björns tengdaföður míns, Ólafssonar. Lenti í slæmu máli í stríðslok. Fargaði sér. Iðrunin var svo mikil. Óskar Þórðarson læknir, fósturfaðir Bengts Schevings Thorsteinssonar, sem var lausakrakki Þorsteins apótekara í Reykjavíkur Apóteki. Einar Olgeirsson alþingismaður og KOMMI, var DUX. Einu sinni átti að reka hann úr kommaflokknum fyrir stríð. Magnús Ágústsson, læknir, síðast í Hveragerði held ég, stakk undan Haraldi Á. Sigurðssyni feita, leikara í Revíunum. Helgi Pálsson Briem, sendiherra, Framsóknarmaður, vann á Spáni mikið í fisksölu, fyrir stríð, skrifaði bókina Iceland and Icelanders þegar hann var í New York, síðar Stokkhólmi og Þýzkalandi. Á held ég enska konu. Torfi Bjarnason læknir, andaðist fyrir fáum vikum (!), varð ca. 95 ára. Fæddur 1899. Kjartan Sveinsson, veit ekkert um hann. Einar Ástráðsson, veit ekkert um hann. Þorkell móðurbróðir Þorkelsson, íþróttamaður, byrjaði í læknisfræði, fékk berkla, var starfsmaður Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1936 og um 1950 fór hann til Tryggingastofnunar Íslands, dó 1963. Ríkharður Kristmundsson, veit ekkert um hann. Karl Þorsteins, stórkaupmaður í Eddu h/f heildverzlun. Consúll fyrir Portúgal, mikill og þekktur frímerkjasafnari og kaupmaður. Gunnar Árnason prestur, Skútustöðum, síðar prestur í Bústaða og Kópavogi eftir skiptin. Við Guðmundur móðurbróðir byggðum húsið í Kópavogi sem hann keypti af okkur. Digranesvegur 6. Þá er það komið sem ég veit, annars get ég kjaftað ýmislegt um suma, en það bíður betri tíma, þetta er nóg í bili." [Þorkell Valdimarsson 3. október 2013]. (ES 2026)

Main information

Dating
Age: 1921
Object-related numbers
Museumnumber a: Mms-34385
Dimensions
16 x 22,5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Classification
Keywords
Depiction: Hópmynd, óskilgreinanleg
Depiction:
Stúdent
References
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands Mms. 34346,15-37440.