Móhesthús

Lítið sem ekkert sést af tóftinni en finnst fyrir hleðslum þar sem húsið stóð. „En fremst á Skákinni [austan við Traðirnar], rétt austur af Traðarhliðinu var Móhesthúsið.“ (Guðmundur Kristinsson 1991:19) „Móhesthús stóð á hól sem túngarðurinn lá yfir, um 10 m SA við traðarhliðið. Þetta hús var komið í tóft um 1930. Þar var talið reimt eftir að lík af manni sem drukknaði í Ölfusá var látið standa þar uppi.“ (Guðrún Alda Gísladóttir. 2002:53) Austur af traðarhliði við gamla veginn sem lá að Selfossbæjunum fast við traðirnar [11] um 10 m frá húsunum í nýja Fosslandinu eru leifar Móhesthússins. Gamla gatan/vegurinn hættir að sjást nokkrum metrum vestan við þar sem Þóristún beygir. Við þessa götu þar sem hún mætir tröðunum stóð Móhesthúsið.

Main information

Title
Proper noun: Móhesthús
Object-related numbers
"Museumnumber b": 161794-12
Place
Staður: Selfoss I, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
References
Guðmundur Kristinsson. 1991. Saga Selfoss I. Frá landnámi til 1930. Selfosskaupstaður.

Place of origin

63°56'16.0"N 21°0'48.9"W