Selfoss

In preservation at
Árnessýsla Heritage Museum
Bæjarhóllinn er ekki ýkja hár en
hæstur er hann að norðanverðu undir útihúsunum, hóllinn lækkar til suðurs.
Bæjarhóllinn er u.þ.b. 70 (SV-NA) x 55 (NV- SA) m í þvermál. Á bæjarhólnum
vaxa tré að sunnanverðu neðan við veginn, en vegurinn liggur að austan
frá Selfosskirkju og áfram vestur að íbúðarhúsi Gunnars Gunnarssonar Selfoss
I. Á norðanverðum hólnum eru útihús og gömlu hús Vestur- og Austurbæjar.
Á túnakorti frá 1917 eru sýnd tvö
sambyggð íbúðarhús norðan við traðarendann. Vestara húsið er merkt „Íbúðarhús
S.J.“ [Símons Jónssonar] en það austara „Íbúðarhús S.A.“ [Sigurgeirs
Arnbjarnarsonar]. Vesturbænum tilheyrðu tvö útihús sem stóðu vestar á túninu
(vestasta parti). Austurbænum (íbúðarhús S. A.) tilheyrðu þrjú útihús sunnarlega
á miðpartstúninu en austan við íbúðarhúsið voru hlaða og peningahús. Engin
hús eru sýnd með austasta partinum, sem er tún Norðurbæjar. Matjurtagarður
Norðurbæjar lá í túni miðpartsins (Austurbæjar). (Túnakort [1920]. Selfoss
(austasti partur). Túnakort [1920]. Selfoss (miðpartur). Túnakort
[1920]. Selfoss (vestasti partur).)
„Vestan í bæjarhólnum stendur
Vesturbærinn. Norðaustur af honum á háhólnum er Austurbærinn. Nokkurn spöl
landnorður frá honum var Norðurbærinn. Þar sem nú er Presthúsið sunnanvert.“
(Guðmundur Kristinsson 1991:18) „Búskap lauk þar 1907 og féllu bæjarhúsin
í tóft.“ (Sunnlenskar byggðir II 1981:405)
Jarðskjálftinn sem varð 16. ágúst
1784 var harðastur í Flóanum og á Selfossi og í Fagurgerði [9] féllu þrjú
hús en hin löskuðust. (Sunnlenskar byggðir II 1981:365) Í jarðskjálftanum
6. september árið 1896 ,,... féll fjósið í Vesturbænum á Selfossi og öll
hús í Norðurbænum og Austurbænum og fórust þar hjónin Arnbjörn Þórarinsson
og Guðrún Magnúsdóttir.“ (Sunnlenskar byggðir II 1981:365)
Gamlar ljósmyndir af Selfossbæjunum
eru í bókinni Sunnlenskar byggðir II og er ein þeirra tekin árið
1937 af Jóni Jónssyni Þjórsárholti, ein er tekin eftir jarðskjálftana 1896
af Sigfúsi Eymundssyni. Sú síðasta er mjög óskýr en hún er af Norðurbænum.
(Sunnlenskar byggðir II 1981:359, 365 og 405) Fleiri gamlar
myndir eru í bókinni Saga Selfoss I. Á einni þeirra sér í Austurbæ
og Norðurbæ og var hún tekin við konungskomuna 1907 [komu Friðriks konungs
VIII] (Guðmundur Kristinsson 1991:89), önnur mynd í sömu bók sýnir bæ Gunnars
Einarssonar, Vesturbæinn, árið 1890 (fyrir Suðurlandsskjálftann 1896) og
enn önnur sýnir Selfossbæina árið 1900 (eftir Suðurlandsskjálftann 1896).
(Guðmundur Kristinsson 1991:186-7)
„Árið 1900 var húsum Selfossbænda
þannig lýst: „Vesturbær: „Baðstofa 12x5 al, járnvarin. Tvær heyhlöður,
járnklæddar, með timburstöfum 11x10 al og 10x7 al. Fjós, hesthús, fjárhús
og áburðarsafnhús, öll með torfþaki en í ágætu standi. Á jarðarpartinum
er vel vandað íbúðarhús 3ja ára gamalt, úr timbri, allt járnvarið 10 al.
langt, 9 al. breitt, allt innréttað, málað utan og innan og vel við haldið
með áföstum skúr 9x5 al., járnklæddum.““ „Austurbær: „Geymsluhús 10x
5 al. járnvarið. Fjós, hesthús og fjárhús, öll með torfþaki í góðu standi.
Á jarðarpartinum er vandað íbúðarhús úr timbri, allt járnvarið 10 al. langt
9 al. breitt, málað utan og innan, 3ja ára gamalt, velviðhaldið, nú allt
innréttað.““ „Á Norðurbænum var torfbaðstofa með járnþaki, þiljuð innan
og með timburgólfi. Gengið inn í hana um lág bæjargöng með eldhúsi. Austan
við hana var eldiviðargeymslan en að vestan var skemman. Heygarðurinn var
á bak við húsin og vestur af honum var fjósið og sneri í vestur með 5-6
básum.“ (Sunnlenskar byggðir II 1981:395)
Í Sögu Selfoss er húsum
Selfoss lýst svo: „Vesturbærinn á Selfossi. Bæjarhúsin. Árið 1890 var
elzta húsið baðstofa Gunnars Einarssonar. Hún var 4 stafgólf 7,55 metra
löng og 3,15 metra breið. Veggir voru úr torfi og grjóti og gert yfir með
skarsúð og torfi. Suðurstafn úr timbri með 8-rúðu glugga. Fyrir vestan
hana var timburhús með reisifjöl á gafli og veggjum en litlar timburflögur
skaraðar á þakið. Vestan við innganginn var stofan og geymsluloft uppi.
Vestur af henni var gestastofan í skúrbyggingu. Vestastur var Reiðingskofinn
úr timbri.
Árið
1897 reif Símon bæ Gunnars og reisti þar nýtt íbúðarhús, sem enn stendur.
Það er 6,30 m langt og 5,70 m breitt, alls 39 m2 með góðu risi. Gengið
er inn að norðan og komið inn í Vesturgang. Þaðan er gengið vestur í eldhúsið.
Þar er hleri í gólfi niður í vestari kjallarann. Vestur af eldhúsi er „matreiðsluherbergið,“
þar sem borðað var. Úr Vesturgangi er gengið vestur í stofu. Og vestur
af henni er gestastofan, þar sem Símon geymdi bóksafn sitt.
Úr
eldhúsi er gengið upp á loft og komið þar upp í baðstofu. Þar var kolaofn,
sem var eina upphitunin í húsinu auk eldavélarinnar. Vestur af henni eru
tvö lítil súðarherbergi. … Árið 1905 var gamla baðstofan austur af íbúðarhúsinu
rifin og reistur „íbúðarskúr“ áfastur húsinu, 6,00 x 4,15 m að stærð.
Gangur var þangað úr Vesturgangi þvert yfir húsið með dyrum að austan.
Tvö herbergi eru þar sitt hvoru megin. … Þá reisti hann [Símon] einnig
dyraskúr norðan við innganginn. Var úr honum innangengt norður í hlóðaeldhúsið,
sem reist var 1905. Það var 4,40 x 2,50 að stærð og var lengi notað sem
eldiviðargeymsla.
Útihús.
Heyhlaðan var reist 1892 5 x 5 m að stærð með 1,25 m háum timburveggjum.
Stafnar voru úr timbri en járn á þaki. Fjós var byggt árið 1900 í slakkanum
vestur af bænum 5 x 5 m stórt úr torfi og grjóti með torfþaki. Austur af
því rétt fyrir norðan bæinn var hesthúsið úr torfi og grjóti og með torfþaki
fyrir þrjá hesta.
Fjárhús.
Ærhúsið var vestur í Koti, úr torfi og grjóti með járnþaki og sér hrútakofi,
og vestast var hesthús fyrir 5-6 hesta. Þar var heyhlaða, sem tók tæpa
100 hestburði. Lambhúsið var þar sem nú er íbúðarhús Gunnars. … Sauðahús
Gunnars Einarssonar voru frammi við Flóðhólsdæl. Þegar Einar, bróðir Sigríðar
[Sæmundsdóttur], kom að Selfossi 1897, var það að falli komið og var endurbyggt.
Björn [Björnsson] vinnumaður hlóð tóftina upp en Einar [Sæmundsson] setti
þakið á.“ (Guðmundur Kristinsson 1991:187-8)
„Austurbærinn á Selfossi. Bæjarhúsin:
Árið 1890 var baðstofa Arnbjörns fyrir austan baðstofu Gunnars. Hún var
með gömlu lagi, þykkum torf- og grjótveggjum og þykku torfi á skarsúðinni.
Austur af henni var Skemman með geymslulofti. Eftir jarðskjálftana 1896
var Skemman gerð upp, þiljuð innan og sett á hana járnþak og gerð að baðstofu
7,55 x 3,5 m að stærð.
Árið
1897 var reist á rústum gömlu baðstofunnar íbúðarhús úr timbri, járnvarið,
af sömu stærð og gerð og Vesturbæjarhúsið, 6,30 x 5,70 m eða 37 m2 með
2,20 m lofthæð, sem enn stendur. Eldhús og borðstofa eru að norðan en 2
litlar stofur að sunnan, 11,20 m2 og 5,75 m2.
Skömmu
eftir aldamót [1900] var reistur áfastur dyra- og geymsluskúr, 29 m2 að
stærð. Þar var inngangur af hlaðinu og gengið úr honum vestur í eldhúsið
og eystri stofuna. Austan við ganginn var herbergi að sunnan en búr og
geymsla að norðan. Austast var Skemman með dyrum fram á hlaðið.
Útihús,
Fjós var byggt árið 1900 úr torfi og grjóti og með járnþaki 25 m2. Árið
1929 var nýja fjósið byggt 8,20 x 8,80 m steinsteypt og járnþaki og áfast
haughús. Þrír kofar úr torfi og grjóti voru frammmi [svo] á túni. Syðst
á móti Þóristúni 9 var hesthús, miðhúsið var lambhús og nyrzt lítill fjárhúskofi.“
(Guðmundur Kristinsson 1991:195)
„Norðurbærinn á Selfossi. Bæjarhúsin.
Þrjár burstir voru fram á hlaðið. Í miðjunni var torfbaðstofa með járnþaki.
Veggir voru úr torfi og grjóti en þiljað innan með timbri. Gengið var inn
í lág og leiðinleg bæjargöng, og var eldhúsið þar í göngunum. Austan við
þau var eldiviðargeymslan en fyrir vestan baðstofuna var skemman.
Fjósið
var fyrir aftan bæinn og snéri í vestur, fyrir 5-6 kýr. Heygarður fyrir
aftan fjósið. Fyrir vestan það var kálgarður, sem Þorfinnur notaði lengi
eftir að húsin voru rifin.
Fjárhús
var í tíð Snorra nyrzt á túninu, á árbakkanum þar sem bergið er hæst, og
sést þar enn grasi gróin hæð.“ (Guðmundur Kristinsson 1991:199)
Í svæðisskráningu sem unnin var
af Fornleifastofnun Íslands er fjallað um Selfossbæinn: „1999: Á bæjarhólnum
standa enn tvö timburhús (Austurbær og Vesturbær), bæði byggð 1897 eftir
Suðurlandsskjálfta. Þau eru bæði í eyði - Vesturbærinn í meir en 30 ár
en Austurbærinn í um 20 - og í mjög slæmu ásigkomulagi, nánast ónýt. Austan
við Vesturbæinn er skúr, yngri en aðalhúsið, og var gólf hans tekið að
síga mjög meðan búið var í bænum og er nú alveg ónýtt. Tveir kjallarar
eru undir Vesturbæ … Skipt var um gler og glugga í báðum húsunum á tímum
seinni heimsstyrjaldar en upprunalegur gluggaumbúnaður er enn á norðurhlið
Vesturbæjar og þar eru leifar af óvenjulegri timburklæðningu, bogadregnar
tré[skífur]. Húsin tvö voru byggð framan (sunnan) við torfbæinn sem hrundi
1897 - og var baðstofan á móts við sundið milli húsanna. Bak við húsin
er nú sund á milli þeirra og útihúsasamstæðu sem stendur nyrst á bæjarhólnum
og hefur torfbærinn verið þar. Framan við Austur- og Vesturbæ var kálgarður
(sýndur á Túnakorti) og var hann við lýði fram um Seinni heimsstyrjöld.
Þá voru gróðursett tré þau sem enn eru sunnan við hlaðið. Norðurbærinn
stóð sér á hól norðaustan við Austurbæ og eru tæplega 100 m á milli. Þar
er nú steypt íbúðarhús. OV [Orri Vésteinsson] skráði 9.11.1999 eftir frásögn
Gunnars Gunnarssonar.“ (Menningarminjar í Sandvíkurhreppi:51)
Vegurinn heim að Selfossbæjunum
liggur að hluta yfir bæjarhólinn. Bæði Austur- og Vesturbærinn standa enn
á hólnum, norðan við veginn og voru þau hús byggð árið 1897. Vesturbærinn
er í mjög góðu ásigkomulagi enda nýuppgert en austurbærinn er í viðgerð
[2004].
GPS: Vesturbær E401327,
N383157 og Austurbær E401345, N383160.
Main information
Source: Gunnar Gunnarsson
Title
Proper noun: Selfoss
Object-related numbers
"Museumnumber b": 161794-1
Dimensions
Lengd: 70 m
Breidd: 55 m
Place
Staður: Selfoss I, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Record type
References
Guðmundur Kristinsson. 1991. Saga
Selfoss I. Frá landnámi til 1930. Selfosskaupstaður.
Guðrún Alda Gísladóttir. 2002.
Menningarminjar í Sandvíkurhreppi. Svæðisskráning. Fornleifastofnun
Íslands, Reykjavík.
Sunnlenskar byggðir II. Flóinn.
1981. Ritnefnd: Oddgeir Guðjónsson, Jón Guðmundsson og Júlíus Jónsson.
Páll Lýðsson bjó til prentunar. Búnaðarsamband Suðurlands, (án útgáfust.).
Túnakort [1920]. Selfoss (austasti
partur). Sandvíkurhreppur, Árnessýsla. Þjóðskjalasafn Íslands.
Túnakort [1920]. Selfoss (miðpartur).
Sandvíkurhreppur, Árnessýsla. Þjóðskjalasafn Íslands.
Túnakort [1920]. Selfoss (vestasti
partur). Sandvíkurhreppur, Árnessýsla. Þjóðskjalasafn Íslands.
Place of origin
63°56'16.0"N 21°0'48.9"W