Fjárhústóft

1940
Um 300 m norður af Hólavatni eru gríðarlega stór og heilleg fjárhús. Fjárhúsið er með niðurgrafinni hlöðu í enda. Í kringum fjárhúsið er gerði/garðar [165547-174-8] sem mynda afmarkað svæði við fjárhúsin og líkjast mest túngarði í kring um heimatún. Innanmál fjárhússins er 13 m á lengdina og 5 m á breidd. Breidd veggja er um 1 til 2 metrar. Garði er í miðju fjárhúsinu. Hlaðan er 6 x 4 m að innanmáli og er hleðsluhæð gaflsins um 1,60 m. Fjárhúsið er mjög heillegt þó nokkuð sé farið að hrynja úr veggjum. Inngangur í fjárhúsin snýr í suður í átt að Hólavatni. Um sjö metra langur garður liggur frá inngangi og hefur myndað vegg eða skjól. Heimildarmaður greindi frá því að bárujárn hafi verið á þaki þegar húsin voru rifin um 1940. „Fremst í Lambhaganum, fram undir Hólavatni, er rúst af stóru fjárhúsi og hlöðu og gerði við. Voru húsin rifin um 1940, er nú notað sem fjárrétt og kallað Fjárhústóft.“ (Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6-7).

Main information

Title
Proper noun: Fjárhústóft
Dating
Age: 1940
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165547-7
Dimensions
Lengd: 13 m Breidd: 5 m
Place
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
References
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun Íslands.

Place of origin

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W