Snorrabraut

Leið þessi er á mörgum stöðum sjáanleg en hún er um 1 m á breidd og um 20 sm djúp. Mikið vatn hefur safnast í hana þar sem hún er greinilegust á miðjum Hólavelli [165547-174-2]. Ekki var hægt að fylgja allri leiðinni þar sem hún er horfin á köflum en GPS-hnit var tekið þar sem leiðin er skýrust á deiliskipulagsreitnum. „Suðvestur við Hólavöll [165547-174-2] miðjan er gömul braut, nú uppgróin, heitir Snorrabraut, kennd við Snorra Sveinbjörnsson (1852-1938), sem rutt mun hafa braut þessa, en hann bjó lengi á Hæringsstöðum.“ (Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).

Main information

Title
Proper noun: Snorrabraut
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165547-6
Dimensions
Breidd: 1 m
Place
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
References
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun Íslands.

Place of origin

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W