Hólaborg

1920
Greinilegur mjög stór hóll sem kallast Hólaborg [165547-174-3] stendur fast við nýlegt plan sem hefur verið gert á svæðinu. Hóllinn ber þess merki að hafa myndast vegna sí endurtekinnar búsetu á sama stað um langan tíma. Hóllinn sker sig mjög úr landslagi og sést víða að. Um allan hólinn má sjá merki um að þar hafi staðið byggingar, þó flestar séu þær svo illa farnar að ekki var unnt að merkja byggingarlag þeirra. Ein tóft er þó mjög greinileg á suð-austurhluta hólsins, en samkvæmt heimildarmanni er það yngsta fjárhúsið sem hætt var að nota um 1920. Fjárhúsið er með inngang mót suð-austri og má sjá greinilega lögun þess, þó er nokkuð mikið af hruni inni í tóftinni. Tröppur hafa verið við dyr. Hleðsluhæð veggja er um 1 m. Norðurhlið fjárhússins er hærri og má sjá í fjögur umför af grjóti. Innanmál tóftarinnar er 7 x 2 m. Fyrir utan tóftina við suðurhlið hennar má sjá lítið hólf sem myndar einskonar gerði eða rétt við suðurvegg tóftarinnar. Þetta hólf er ekki niðurgrafið eins og húsið. Líklegt má telja að þetta hafi verið heystæði fyrir fjárhúsið. „Á Hólavelli [165547-174-2], nokkuð vestur með Rjómabússkurði, er hár hóll með miklum rústum sem heitir Hólaborg [165547-174-3]. Þar voru áður fjárhús frá Hólum, lögð niður um 1920.“ (Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).

Main information

Title
Proper noun: Hólaborg
Dating
Age: 1920
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165547-4
Dimensions
Lengd: 7 m Breidd: 2 m 1 m
Place
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
References
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun Íslands.

Place of origin

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W