Hólaborg
1920

In preservation at
Árnessýsla Heritage Museum
Greinilegur mjög stór hóll sem
kallast Hólaborg stendur fast við nýlegt plan sem hefur verið gert á svæðinu.
Hóllinn ber þess merki að hafa myndast vegna síendurtekinnar byggingar
á sama stað um langan tíma. Hóllinn sker sig mjög úr landslagi og
sést víða að. Hóllinn er ekki náttúrusmíð.
Um allan hólinn má sjá merki um
að þar hafi staðið byggingar, þó flestar séu þær svo illa farnar að ekki
var unnt að merkja byggingarlag þeirra. Ein tóft er þó mjög greinileg á
suð-austurhluta hólsins [165547-174-4]. Ekki sér í mikið hleðslugrjót nema
í fjárhúsinu. Líklegt að grjót hafi verið tekið úr eldri byggingum og sett
í yngsta húsið. Hóllinn er 28 m frá suðri til norðurs og 19 m frá austri
til vesturs.
Hóllinn líkist mjög bæjarhól, en
ekki eru til neinar heimildir um að bær hafi staðið á þessum stað.
„Í Hólavelli [165547-174-2], nokkuð
vestur með Rjómabússkurði, er hár hóll með miklum rústum, heitir Hólaborg.
Þar voru áður fjárhús frá Hólum, lögð niður um 1920.“ (Örnefnaskrá
Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).
Main information
Source: Helgi Ívarsson
Title
Proper noun: Hólaborg
Dating
Age: 1920
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165547-3
Place
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
Record type
References
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi,
Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun
Íslands.
Place of origin
63°49'51.5"N 20°56'5.8"W