Hólavöllur

Allt svæðið telst vera áningarstaður því ekki er vitað nákvæmlega hvar fólk áði á leið sinni. Heimildamaður Helgi Ívarsson greindi frá því að ferðamenn sem fóru um svæðið hefðu oft orðið uppvísir að því að stela heyi úr fjárhúsum Hólabænda sem eru á svæðinu. Leið sem kölluð er Snorrabraut [165547-174-6] liggur yfir Hólavöll og á þeirri leið voru ferðamenn sem áðu á Hólavelli. „Hólavöllur er víðáttumikið beitiland, sem tekur við fyrir norðan Rjómabússkurð. Skiptast þar á mýri og valllendi. Hólavöllur var fyrrum áningarstaður ferðamanna á Ásavegi, ....“ (Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977:6).

Main information

Title
Proper noun: Hólavöllur
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165547-2
Place
Staður: Hólar, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg
References
Örnefnaskrá Hóla, Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu. 1977. Heimildarmaður og skrásetjari: Helgi Ívarsson. Örnefnastofnun Íslands.

Place of origin

63°49'51.5"N 20°56'5.8"W