Archaeology Remain

In preservation at
Árnessýsla Heritage Museum
Brunnurinn er 1 x 1 m og búið er
að fylla upp í hann. 0,5 m kantur úr torfi er í kringum brunninn.
„Vatni þessu sem upp kemur úr
Flóahrauninu verður að gera nokkru nánari skil. Þar sem það kemur upp (uppspretta
á okkar máli), er það silfurtært, kalt og ágætur svaladrykkur, dálítið
beiskt á bragðið sem venst vel sé það drukkið beint úr lindinni. En sem
brunnvatn fær það á sig skolplit sem uppþvottavatn væri, ógeðslegt til
drykkjar og óhæft til þvotta. Þannig var vatnið í brunnum bæjanna sem stóðu
út í mýrinni í efri jaðri sveitarinnar, Brú, Oddagörðum, Gljákoti, Breiðumýrarholti,
Keldnakoti og Stokkseyrarseljum.“ (Sunnlenskar byggðir II. Flóinn.
1981:176) Brunnur er 10 m austur frá bæjarhól Eystri Stokkseyrarsels.
Main information
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165542-5
Place
Staður: Eystra-Stokkseyrarsel, 825-Stokkseyri, Sveitarfélagið Árborg
Record type
References
Sunnlenskar byggðir II. Flóinn.
1981. Ritnefnd: Oddgeir Guðjónsson, Jón Guðmundsson og Júlíus Jónsson.
Páll Lýðsson bjó til prentunar. Búnaðarsamband Suðurlands, (án útgáfust.).
Place of origin
63°52'28.4"N 21°3'41.5"W