Archaeology Remain

In preservation at
Árnessýsla Heritage Museum
Garðurinn myndar nokkurs
konar gerði við dæl sem er í túninu og liggur svo norðan við útihús
nr 2 í átt að Kumbaravogi. Garðurinn liggur 13 m NS beygir síðan
til vestur í 25 m. Þá beygir garðurinn í norður í 20 m þar kemur 30 m skarð
þar sem steinarnir sjást ekki, síðan byrjar hann aftur og liggur í 22 m.
Þar sem garðurinn endar eru um 7 m í útihús nr 2. Síðan tekur garðurinn
beygju til austurs um 18 m. Síðan beygir garðurinn til norðurs og er óljós
til að byrja með en er orðinn greinilegur 4 m frá austurvegg útihússins
nr 2. Garðurinn liggur sem sagt 12 m í norður. Sveigir svo í vestur um
42 m þar sem kemur rof á garðinn, hann hefur verið skemmdur, hjólför liggja
um þetta svæði. Garðurinn er skemmdur á 10 m svæði en heldur svo áfram
í um 60 m í vestur þar sem hann verður óljósari. Garðurinn endar um 60
m frá Kumbaravogi. Garðurinn liggur í brekku við dælina en þar er nývaxinn
gróður, mikið af mold. Garðurinn er um 0,5 m á breidd og hæst um 0,3 m.
Garðlag er um 70 m norður frá Ísólfsskála
(nýja) og um 30 m vestur frá vegi. Norðurhluti garðlagsins er um 7 m frá
útihúsi [2].
Main information
Object-related numbers
"Museumnumber b": 165541-4
Place
Staður: Eystri-Rauðárhóll, Sveitarfélagið Árborg
Record type