Tóvinna

In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1891)
Object-related numbers
Museumnumber a: 1547 "Museumnumber b": 1968-1
Questions / Answers
Allar spurningar og svör
Nr. 1547

p1
Ull og tóvinna 14.
Vefnaður: Ég gat þess í upphafi að það litla, sem ég gæti
sagt um vefnað væri frá uppvaxtarárum mínum á Héraði. Faðir minn
átti vefstól og það helsta, sem honum fylgdi, eins og t.d. balbínur, rakgrind,
vefjarskeið ofl. Óf hann eitthvað flesta vetur frá því að ég man
eftir mér og þangað til foreldrar mínir fluttu frá Refsmýri 1907. Þessi
vefstóll föður míns var af þeirri gerð að fram- og afturrifur, sem líka
var kallaður "bóma" voru á sömu hæð, höföld voru 4 og skammel
4. Ég sá líka aðra gerð frábrugðna að því leyti, að bóman var nokkuð
hærra uppi en framrifur. Það var málvenja á Héraði á þessum árum,
að talað var um að festa upp vef, vefa af kappi og loks að fella vefinn.
Það var þegar skilsköftin voru komin svo nærri höföldunum, að ekki
var unnt að vefa meira, jafnvel þó fremra skaftið væri tekið burt. Þegar
svo var komið, var vefurinn skorinn niður, undinn upp og kallaðist vefjarstrangi.

p2
Þér spyrjið á bls.
1. Var voðunum gefið nafn eftir því til hvers átti að nota þær, án
tillits til vefnaðarvendar. Ég get þess til gamans, að þetta orð
heyrði ég aldrei meðan ég var á Héraði. Þóttist ég vita að það væri
sama orðið og vígindi, sem þar var notað um vefnaðargerð. Síðar sá
ég að samkvæmt stafsetningaorðabók Freysteins Gunnarssonar, er það svo,
að orðin vefnaðarvend og vígindi merkja það sama. Hinu svara ég játandi,
að eftir málvenju á Héraði var voðunum gefið nafn eftir því til hvers átti
að nota þær, t.d. skyrtudúkur, buxnaefni osfrv. Ekki er lengi
gert að telja þær vefnaðargerðir, sem ég heyrði talað um á unglingsárum
mínum. Þær voru einskefta, vaðmál, klæðisvefnaður, vormeldúkur og
salúnsvefnaður. Hér skrifað eftir framburði, eins og hann var á Héraði
á fyrstu 2-3 áratugum þessarrar aldar. Faðir minn var fæddur í Fljótsdal,
og mun hafa lært vefnað af eldri samtímamönnum þar. Veit ég ekki
til að hann fengi sérstaka kennslu

p3
í þeirri iðn.
Hann byrjaði búskap í Refsmýri í Fellum og stundaði talsvert vefnað
á vetrum meðan hann bjó þar, eins og áður segir. Hann óf langmest
vaðmál og einskeftu og nokkuð klæðisvefnað. Fjölbreytnin var ekki
meiri en það. Ég reyni ekki að lýsa vígindum á vaðmáli og einskeftu.
Geri ég ráð fyrir að þau hafi allsstaðar verið eins. Einfaldasti
vefnaður sem til er, er einskefta, segir frú Sigrún Blöndal í vefnaðarbók
sinni, ef ég man rétt. Ekki man ég lengur hvort eins var
krækt upp, þegar ofin var einskefta og vaðmál, þ.e. hvort höföld og skammel
voru tengd á sama hátt. Hitt man ég, að þegar ofin var einskefta,
þá hreyfði vefarinn báða fætur og sló 2 högg með skeiðarhaldinu við hvert
fyrirdrag. Hann stóð annaðhvort á báðum jaðarskammelum eða á báðum
miðskammelum, þegar hann skaut skyttunni. Þegar ofið var vaðmál, hreyfði
vefarinn aðeins annan fótinn, og sló eitt högg

p4
við hvert fyrirdrag
um leið og hann steig á skammelið. Þannig hreyfðist eitt hafald við
hvert fyrirdrag, þegar ofið var vaðmál, en 2 þegar ofin var einskefta.
Talinn var minni vandi að vefa einskeftu en vaðmál. Vefarinn þurfti
aðeins að velja um það frá upphafi, hvort hann vildi standa á jaðarskammelum
eða miðskammelum, þegar hann gerði hlé á verkinu og haga sér samkvæmt því,
þegar hann byrjaði á ný. Þá urðu engin missmíði á vígindum. Vefaranum
reyndist hættara við að misstíga sig þegar ofið var vaðmál. Það varð
að stíga skammelin nákvæmlega rétt. Ef hreyfing hafaldanna ruglaðist,
kom það fram á vígindunum. Þessum fallegu reglubundnu skálínum, sem
allir geta séð á vel ofnum vaðmálskúkum og eins beggja megin.
Satt að segja eru vígindin á klæðisvefnaði ekki vel ljós í huga mínum.
Þykist ég muna að þessi vefnaðargerð var lík vaðmáli, en frábrugðin að
því leyti að vígindin voru ekki eins beggja megin.

p5
Eins og áður segir
heyrði ég nefnda vefnaðargerðina vormeldúk í æsku minni á Héraði. Er
þetta vafalaust sami vefnaðurinn, sem á spurningablaðinu kallast ormeldúkur.
Ég hygg að faðir minn hafi ekki kunnað að vefa hann. Minnist
ég þess ekki heldur að ég sæi hann ofinn af öðrum. Einhvern veginn
fékk ég þá hugmynd á þessum árum að það þyrfti mikinn lærdóm og listfengi
til þess að geta ofið ormeldúk. Hann væri þannig að efra og neðra
borð væri sitt með hvorum vígindum, og oft sitt með hvorum lit. Það
væri á honum rétthverfa og ranghverfa. Ekki man ég hver fræddi mig
um þetta. Í raun og veru er þetta mjög nálægt því rétta. Í vefnaðarbók
frú Sigrúnar Blöndal segir: "Ormeldúksvígindi eru þannig að
heita má að uppistaða og ívaf komi út sitt hvoru megin á voðinni".
Eftirtektarvert er það að frúin skrifar ormeldúkur. Hún var þó alin
upp á Héraði. En hvað sem því líður, tek ég ekki aftur það sem ég
hef áður sagt um framburðin vormeldúk.

p6
Ég hlýt að verða
fáorður um vaðmálsvefnaðinn. Meðan nærföt voru ofin úr ullarbandi
eingöngu, óf faðir minn að vísu talsvert mikið af vaðmáli margan vetur.
En yfirleitt var frekar lítil tilbreytni í sambandi við það. Reyndar
má segja að alltaf væri gaman að því, þegar var verið að búa sig í að festa
upp vef: að balbína, rekja, bóma, draga í höföld og skeið. Þegar farið
var að vefa gekk þetta allt nokkuð jafnt áfram. Að vísu var dálítið
misjafnt, hvað oft þurfti að bæta. Var það verk okkar krakkanna að
hjálpa til við það. Auk þess var okkar verk að sjá um að spóla. Ullardúkar
úr mislitum sauðarlitum voru frekar sjaldgæfir. Voru það sérstaklega
buxnaefni. Á litlum heimilum þurfti ekki að vefa þá, nema á nokkra
ára fresti. Oftast voru dúkar þessir langröndóttir. Litur svartur,
mórauður, hvítur, grár. Munstur gátu verið misjöfn. Voru hvítu
rendurnar venjulega mjóar.

p7
Ekki óf faðir minn
salúnsvefnað. Man ég aðeins eftir einni konu á Héraði, sem óf þann
vafnað, allt þangað til fór að gæta áhrifa frá húsmæðraskólunum. Hún
hét Margrét Ólafsd., og var frá Syðri-Steinsmýri í V-Skaftafellssýslu.
Man ég ekki hvort það er á Síðu eða í Meðallandi. Veit ég ekki hvenær
hún og Páll maður hennar fluttu austur á Hérað. Margrét var flutt að Krossi
í Fellum til Páls sonar síns og Sólveigar föðursystur minnar áður en við
fórum frá Refsmýri 1907. Á þeim árum kynntist ég henni. Var
hún fyrir sig tóvinnu og vefnað. Var hún jafn mikilvirk við hvort
tveggja. Þetta var þó áður en algengt varð að senda ullina í lopa.
Mesta ánægju hafði Margrét af að vefa. Heyrði ég marga undrast
hve vel henni vannst t.d. þegar hún óf vaðmál eða einskeftu. Var
hún þó dálítið hölt. Mest dáðist ég samt að Margréti af því, að hún
gat ofið salúnsteppi alla vega lit og rósabekki með salúnsvefnaði úr mislitum
tvistdúkum.

p8
Þegar ég les þær
mörgu spurningar, sem á blaðinu standa, finn ég mjög til þess hve fáfróður
ég er um efnið, sem um er spurt. Verða það aðeins fáar einar spurningar,
sem ég svara, og ekki alltaf í þeirri röð, sem þær eru á spurningablaðinu.
Rétt er að geta þess strax, að á þessm árum var aðeins um
tvö efni að ræða til vefnaðar. Var það íslenskt ullarband og útlent
garn. Útlenda garnið kallaðist einu nafni tvistur, eftir málvenju
hér. Hann fékkst venjulega bæði hvítur og mislitur. Af hvíta
tvistinum fengust 2 tegundir, önnur mjallhvít og fín, hin blakkari og grófari.
Misliti tvisturinn fékkst í ýmsum litum, t.d. brúnn og blár, gulur
og rauður. Líklega hefur hann líka fengist grænn, þó ég muni það
ekki. Tvisturinn fékkst í svokölluðum búntum. Voru 10 hespur
í hverju, ef ég man rétt. Langmest var notað af hvíta tvistinum.
Þykist ég mega fullyrða að meira var notað af honum, en öllum mislita
tvistinum samanlagt. Blái liturinn mun hafa verið mest notaður af
þeim mislita.

p9
Þér spyrjið á bls.
1: Var orðið tvistur eða tvistdúkur notað um einskeftu, sem var að öllu
leyti úr útlendu garni? Um það vil ég segja þetta: Stundum
var talað um tvistdúk, ef efnið var eingöngu tvistur, bæði uppistaða og
ívaf. Var það án tillits til litar, víginda eða í hvað voðin átti
að fara. Hitt er svo annað mál, að vígindi tvistdúkanna var venjulega
einskefta. Hvítur tvistur var talsvert notaður í uppistöðu. Gaf það
tilfefni til nokkurrar fjölbreytni. Væri t.d. festur upp 40 álna
langur vefur og kallaður sængurfataefni, var engin nauðsyn að vefa sömu
vígindin allan vefinn á enda. Segjum að í helmingnum af þessum
vef væri ívafið hvítur tvistur og vígindin einskefta. Þetta mátti
nota í sængurver, koddaver og lök, rekkjuvoðir. Ekkert var auðveldara
en skifta um og hafa hinn helminginn af ívafinu úr íslenskri ull. Þá
var um leið breytt um vígindi og ofið vaðmál. Vil ég geta þess hér,
að það var talsvert gert að því á fyrstu 2 áratugum aldarinnar, að blanda
á þennan hátt saman

p10
tvisti og ullarbandi.
Þegar þetta var gert voru alltaf ofin vaðmálsvígindi. Ekki
man ég eftir neinu sérstöku nafni á þessu blendingsvaðmáli. Var það
t.d. notað í undir rekkjuvoðir, þótti hlýlegra en lök úr tvisti eingöngu,
einnig líklega meira í nærföt, nærskyrtur og buxur, einkum á karlmenn og
unglinga. Ekki voru þeir allskostar ánægðir með þetta blendingsvaðmál.
Þótti það ekki eins hlýtt og voðfellt eins og alullardúkarnir. Svona
gekk þetta, þangað til prjónavélarnar komu til sögunnar um 1920. Eftir
fá ár gengu allir í prjónanærfötum. Nú eru flestir orðnir of fínir
til þess.

p11
Mér virðist óhætt
að segja, að mislitir tvistdúkar og einskeftuvígindi fylgdust alltaf að.
Ef átti að vefa mislitan vef, þurfti fyrst að velja liti í uppistöðuna.
Venjulega voru þeir ekki fleirri en 3. Þó litirnir væru ekki
fleirri en þetta var hægt að raða þeim á marga vegu. Hugsum okkur
t.d. hvítan, bláan og rauðan lit. Kom þá til sögunnar að velja munstur.
Áttu rendurnar t.d. að vera jafnbreiðar, eða átti einn liturinn að
vera mest áberandi, og hve margir þræðir áttu að vera í hverri litasamstæðu.
Mátti segja hér að kvöl á sá, sem völ á. Þetta varð að ákveða
áður en byrjað var að rekja. Sá ég konur vefja litina á spýtur eða
spjald, til þess að átta sig á röð litanna. Ekki man ég sögnina að
munstra, en nafnorðið munstur var algengt. Mislitir tvistdúkar voru
notaðir í buxur og blússur handa börnum, milliskyrtur handa drengjum og
fullorðnum, í pils og kjóla handa telpum og í treyjur og svuntur handa
konum á ýmsum aldri.

p12
Þér spyrjið á bls.
7, hvort haldin hafi verið vefnaðarnámskeið í héraðinu á seinni áratugum.
Fer hér á eftir í stuttu máli það, sem ég veit um þetta. Árið
1924 var haldið vefnaðarnámskeið á Vopnafirði. Var það Kvenfélag
Vopnafjarðar, sem átti frumkvæði að því. Eina skriflega heimildin,
sem ég hef fundið um þetta námskeið er frá 1947. Það ár átti félagið
40 ára afmæli. Í fórum félagsins frá þessu ári er stutt yfirlitsgrein
um störf félagsins á liðnum árum, eftir þáverandi formann þess, frú Aagot
Vilhjálmsson. Getur hún þess þar, að félagið hafi m.a. gengist fyrir
áðurnefndu námskeiði 1924. Ekki er þess getið þar hver kenndi á námskeiðinu,
hve lengi það stóð, né hve margir nemendur voru. Aldraðar konur hér í þorpinu
segja mér að kennslukonan hafi heitið Þorbjörg Jónsdóttir, og verið úr
Breiðdal. Ekki hef ég fundið nafn hennar í bókinni Kennaratal á Íslandi.


p13
Ekki veit ég með
vissu nema um eina konu, sem var á þessu námskeiði 1924. Hún hét
Sigþrúður Dóróthea Pálína Steindórsd. Er mér sagt að hún hafi borið
af þeim nemendum, sem námskeiðið sótti, bæði hvað snerti afköst og vandvirkni.
Hefur hún þá verið 21 árs. Ef flett er upp í Kennaratalinu,
viðbætinum bls. 402, er í dálki til hægri á miðri síðu nafnið Ingibjörg
Ólafsdóttir, f. 10. okt. 1926 í Leiðarhöfn í Vopnafirði. Foreldrar
eru Ólafur Albertsson, útvegsbóndi í Leiðarhöfn og kona hans Sigþrúður
D.P. Steindórsd., sem áður var getið. Þessi myndarlega kona með nöfnunum
3, deyr á ungum aldri, því miður aðeins 10 árum eftir að hún er á námskeiðinu
á Vopnafirði. Hún lætur eftir sig 3 börn: Albert, Ingibjörgu og Steindór.
Eftir lát móðurinnar alast þau upp hjá föður sínum og frændfólki
í Leiðarhöfn. Þar eiga þau heima enn. Eins og segir í æviþætti
Ingibjargar hefur hún lokið handavinnu kennaraprófi. (er ógift og barnlaus).


p14
Ég hef átt heima
í Vopnafirði síðan 1924. Mundi ég greinilega að síðan hafa verið
haldin 2 vefnaðarnámskeið, á Hofi og Torfastöðum. Ekki mundi ég hvaða
ár þau voru haldin, né hverjir sóttu þau. Þess vegna sendi ég 3 ágætum
konum eftirfarandi spurningar: 1. Hvaða ár og hve lengi stóð hvort námskeið?
2. Hve margir sóttu hvort þeirra og hverjir voru þeir? 3. Hver heldurðu
að hafi verið mesta nýjung í vefnaði, sem fram kom á hvoru námskeiði? 4.
Heldurðu að þau hafi haft einhver varanleg áhrif og þá hver? Jafnframt
bað ég þessar vinkonur mínar að senda mér vefnaðarsýnishorn handa Þjóðminjasafninu
og skrifaði þeim orðréttan kafla af blaðinu á bls. 1, þar sem vikið er
að þessu. Þær töluðu allar við mig í síma, en engin þeirra taldi
sig hafa neitt undir höndum,sem hægt væri að senda safninu. Aðeins ein
þeirra lagði í að senda skriflega frásögn af námskeiðunum. Var hún
bæði greinargóð og með fallegri rithönd.

p15
Vefnaðarnámskeið
1944. Stúlkan heitir Kristín Runólfsdóttir, Ásbrandsstöðum. Fer
frásögn hennar hér á eftir, orðrétt að heita má. Á Hofi var vefnaðarnámskeið
1944, aprílmánuð. Kennari var Malen Guttormsdóttir frá Ketilsstöðum
í Hjaltastaðaþinghá. Nemendur voru 6, þ.e. þessir: Elín Friðriksdóttir,
Guðrún Sigurjónsdóttir, Rannveig Valdimarsdóttir, Sesselja Ingólfsdóttir,
Stefán Helgason, Þórhallur Jónsson. Þessi stykki voru ofin:
6 Bekkábreiður með salonsvefnaði. 6 Borðrenningar með einskeftu
og ýmsum gerðum af rósabandsbekkjum ofið í. 5 Sessur með samskonar
vefnaði. 1 Veggrefill með samskonar vefnaði, óvíst hve langur. 6
Gluggatjöld með köngulóavef. 6 Baðhandklæði með skeljavefnaði. Blússuefni,
einskefta með röndum. Ég vil geta þess að ég hef ekki fundið
nafn Malenar í bókinni Kennaratal á Íslandi. Ég þykist mega fullyrða
að Malen hafi orðið húsfreyja á Stórabakka í Hróarstungu.

p16
Vefnaðarmámskeið
1952. Í mars og apríl 1952 var vefnaðarnámskeið haldið á Torfastöðum.
Stóð það í 6 vikur. Kennari var Ólöf Þórhallsdóttir. (sjá Kennaratal
á Íslandi 2, bls 40). Nemendur voru 8. Þeir voru þessir: Anna
Sigurðardóttir, Guðlaug Pálsdóttir, Guðlaug Sæmundsdóttir, Gunnsteinn Karlsson,
Halldóra Andrésdóttir, Kristín Runólfsdóttir, Ólöf Helgadóttir, Sigrún
Runólfsdóttir. Þar voru ofin 127 stykki og þau eru: 6 Bekkábreiður
með salonsvefnaði. 2 Veggteppi með krókbragðsvefnaði. 30 Stólsetur
með krókbragðsvefnaði. 20 Borðreflar, 14 púðar, einskefta með ýsmum
gerðum af rósabandsbekkjum, handofnum skýjafarsbekkjum, glitvefnaði og
knúppavefnaði. 3 Kaffidúkar með dalavefnaði. 17 Bakkadúkar
með salonsvefnaði. 14 Gluggatjöld, einskefta með rósabandsbekkjum.
18 Handklæði með vöfluvefnaði. 1 stk jafi 2,70m. 1 Gólfdregill 7
m. og 1 m motta í Hofskirkju.

p17
Þess skal getið hér
að Kristín Runólfsdóttir var á námskeiðinu á Torfastöðum, en ekki á Hofi.
Hún segir líka þetta að lokum: "Mér er ekki vel kunnugt
um námskeiðið á Hofi. Ekki veit ég hvað hefur þótt mesta nýjung í
vefnaði á námskeiðinu hjá okkur. Mér finnst yfirleitt þykja mest
varið í þennan elsta vefnað. Námskeiðin höfðu talsvert varanleg áhrif.
Við sem vorum á Torfastöðum gátum öll sett upp vef á eftir og bjargað okkur
við að vefa".

p18
Hvar eru nemendurnir?
Þegar námskeiðin voru haldin á Hofi og Torfastöðum voru nemendurnir
allt ungt fólk, aðeins ein gift kona. Allt átti það heima hér í sveitinni.
Nú er þetta dálítið breytt orðið. Ég nefni hver einstakan án
þess að tefja svo heitið geti. Nemendur frá Hofi: Elin Friðriksd.
er húsfreyja í Eyjafirði. Guðrún Sigurjónsd. og Rannveig Valdimarsd.
eru látnar. Sesselja Ingólfsd. er búsett í Reykjavík. Stefán
Helgason er búsettur hér í þorpinu. Þórhallur Jónsson býr í félagi
við bróður sinn á Hauksstöðum. Nemendur frá Torfastöðum: Anna
Sigurðard. á heima á Felli, Vopnaf. Guðlaug Pálsd. og Guðlaug Sæmundsd.
báðar búsettar í Reykjavík. Gunnsteinn Karlsson búsettur hér í þorpinu.
Halldóra Andrésd. einnig búsett hér. Kristín og Sigrún, systur,
eiga heima á Ásbjarnarstöðum, Vopnaf. Ólöf Helgad, Hátúni, nýbýli
frá Hrappsstöðum, Vopnaf.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Tóvinna
Keyword:
Ull