Bátavél

In preservation at
National Museum of Iceland
Bolinder No 24046 35 EFF HK HV. PR. 425 Stockholm. Grænmáluð, cylinder og hljóðkútur allmjög brotinn, vantar talsvert á vélina. Kom úr Vélskóla Íslands, líklega 1972. Var síðast ljósavél í Flatey á Breiðafirði, áður en hún fór í Vélskólann. Á áföstu skilti stendur: Bolinder´s Patent Råoljemotor No. 24046 35 EFF. HK. HV. PR. M. 425 Stockholm Vélin er upphaflega sögð hafa verið í báti, ekki vitað hvaða, síðan notuð til að lýsa upp hús í Flatey á Breiðafirði: Síðast notuð til kennslu í Vélskóla Íslands, Reykjavík. Vantar rafalinn. Vélin er ljósgræn á lit og tekin að ryðga. Lítil stykki hafa flagnað eða brotnað frá vélinni og eru þau varðveitt í rammanum sem vélin hvílir (í gróp). Þetta er eins cylinders, tvígengis hráolíuvél með afsláttarregulator; glóðarhaus. Lausir fylgihlutir: TMS 1972:5 -10 Hafsteinn Guðmundsson í Flatey á Breiðafirði fullyrðir að vélin sé ekki gömul ljósavél þaðan. Þar voru notaðar litlar bensíntíkur til ljósa og vindrafstöðvar. Í frystihúsinu var Inkmahandvél. Minni vélar en Bolinderinn voru í bátum í Flatey. Einnig upplýsingar Guðmundar Péturssonar frá Flatey, Hrafnistu, Hafnarfirði. Ingólfur Viktorsson frá Flatey kannast ekki við hana. Ýmsa hluti vantar í vélina sem enn eru í Árbæ eða jafnvel í Þjóðminjasafni.

Main information

Bolinder, Attributed
Donor:
Vélskóli Íslands
Object-related numbers
Museumnumber a: T "Museumnumber b": 1972-4
Dimensions
208 x 178 x 140 cm 1500 g Lengd: 208 Breidd: 178 Hæð: 140 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Keywords
Keyword: Bátavél