Bátavél
1940

In preservation at
National Museum of Iceland
Bátavél. Um feril sjá hjálagt minnisblað Þ.M. Samskonar glóðarhausvél frá Agli Ólafssyni á Hnjóti, samanber minnisblöð Þórs Magnússonar, var nýtt í varahluti í þessa. Þriðja Bolindervélin var ennfremur höfð til að byggja 1983:101 upp. Sú vél kom 1984 frá Magnúsi Guðmundssyni, Kvígindisfelli Tálknafirði.
Vélin er nú sem ný, gangfær og sannkallað augnayndi. Hún er grámáluð en áletranir hafðar svartar. Pétur Jónsson, sem gerði vélina upp, smíðaði undir hana undirstöður úr eik, eins og þær voru í bátum og líkti ennfremur eftir bátskili: ca ¼ stefni og stýrislykkja. Þá er vélin með skrúfu og stefnisröri. Athugið að uppgefin mál miðast við þessa heild, þ.e. vél, undirstöðu, skrúfu og púströr. Mótorlampinn á vélinni er af gerðinni Sievert.
Á skilti stendur:
BOLINDER´S CRUDE OIL ENGINE
PAT. APPL. FOR IN U.S.A. & MOST COUNTRIES
TYPE - W3 M 11 NO 29457
8 - 10 B. H. P. REV. P.R.M 9/1000
MADE IN SWEDEN
Ath. vélin var flutt á Sjóminjasafn Íslands á sýningu í maí 1993.
Á minnisblöðum Þórs Magnússonar fyrrv. þjóðminjavarðar segir svo um vélina:
BOLINDER
Lítil bátavél frá Fossá á Barðaströnd.
Sigurmundur Haraldsson frá Fossá gaf safninu vélina 1983. Kom 24/10.
Vélin var keypt 1942 eða eitthvað fyrr, og þá sett í bát Sveinbjarnar Daníelssonar, sem kenndur er við Svefneyjar. Báturinn hét Sundhani og var 3 tonn að stærð. Valdimar Ólafsson í Hvallátrum smíðaði bátinn trúlega snemma á 3. áratugnum, var um tíma heimilisbátur þar í Hvallátrum og þá með Kermat - vél. Síðar var Sundhani umsmíðaður í Hvallátrum af Þorbergi Ólafssyni undir Bolinder - vélina.
1947 tekur Sveinbjörn Bolinderinn úr Sundhana og setur í hann Skandíavél. Þá keypti Andrés Andrésson frá Hamri Bolinderinn og setti í gamlan bát, Fönix, sem fenginn var frá Hrísey 1942-1943. Þetta var norsksmíðaður, breiðbyrtur bátur, borðhækkaður og byggt ofan á hann þar fyrir norðan. Hafði verið með Acadia - vél er hann kom að norðan. Var svo með Bolinder - vélinni frá 1948 til 1953 eða 1954. Þá bræddi vélin úr sér og var tekin úr og endurnýjuð, en aldrei sett í bát á ný, og reyndar ekki sett saman, þótt Andrés fengi í hana varahlutina, m.a. nýjan cylinder og stimpil og léti renna upp sveifarásinn. Sigurmundur Haraldsson á Fossá (nú vélstjóri, Unufelli 23, R.) fékk þá vélina og setti saman og gerði gangfæra. Vantaði þó réttan hljóðkút, setti á hana Skandia - hljóðkút, og málaði bláa.
Sjá bréf um vélina frá Andrési Andréssyni, 8/7 1984. Í bréfasafni Þjóðminjasafnsins.
Vélin er nú hjá Pétri Jónssyni til viðgerðar. - Réttur hljóðkútur fékkst á hana af Bolinder - vélinni frá Agli Ólafssyni á Hnjóti.
24/9 1984.
Pétur G. Jónsson lauk við að gera við vélina í nóvember 1985. Vantar aðeins á hana hettuna yfir glóðarhausinn svo og hlíf aftan á hana, en vonast er til að hlífina megi fá, líklegast erfiðara með hettuna. - Smíðaði undiir hana eikarstykki og líkti eftir bátskili og skrúfugati. - Vélin er síðan grámáluð, eins og þær voru oft, en einnig voru þær svartar, og áletrunin er svört og eilítið svart til skrauts.
Hann setti vélina í gang alloft. - Hljóðkúturinn á henni er af vélinni frá Agli á Hnjóti, og einnig tók hann fleira úr þeirri vél og hinni, sem kom úr Tálknafirðinum, þannig að í rauninni er ekkert við þær að gera lengur, því að það sem eftir er eru aðeins ryðstykki, sem líklegast verða aldrei neinum að gagni.
Vélina setti Pétur upp í Árbæ, í Beykisbúð, ... Vélin er nú inni í Dugguvogi, hefur verið þar síðan í fyrra, fer vel um hana í hlýju og þurru húsi. 10/11 1988.
Aðalsteinn Eyjólfur Aðalsteinsson frá Hvallátrum á Breiðafirði segir að Bolinder - vélin hafi komið til landsins haustið 1940, með síðustu eða einna síðustu ferð frá Svíþjóð til Íslands. Hafliði Jónsson, yfivélstjóri á Goðafossi (II) og föðurbróðir Sveinbjörns Daníelssonar, hafði milligöngu um kaupin á vélinni. Hafliði fórst þegar þýskur kafbátur sökkti Goðafossi 10. nóvember 1944. Vélin var sett í bát Sveinbjörns, Sundhana, árið 1941. Í tengslum við það var báturinn lengdur, breikkaður til enda, borðhækkaður og sett í ný stefni að framan og aftan. Breytingarnar önnuðust skipasmiðirnir Þorbergur Ólafsson (kt. 2208154989) og Einar Sturluson, en unnið var að smíðunum í Hvallátrum. Þeir voru þá báðir fastráðnir í slippnum í Reykjavík.
Bolinder - vélin þótti ekki reynast vel enda lak úr henni smurolía þegar hún var í gangi. Þetta gerði það að verkum að vélin var löðrandi í olíu, og kunni Sveinbjörn því illa. Fljótlega eftir að stríðinu lauk seldi Sveinbjörn Bolinderinn og keyti í staðinn Skandia - vél. Fyrsta vélin í Sundhana var amerísk, segir Aðalsteinn, af tegundinni Kermat.
Aðalsteinn Ólafsson í Hvallátrum, faðir Aðalsteins Eyjólfs, byrjaði á smíði Sundhana en drukknaði frá verkinu óloknu 1923. Lá smíði bátsins niðri í tvö ár eða til 1925 þegar Valdimar Ólafsson í Hvallátum tók hana upp aftur og lauk við. Þórður, sonur Sveinbjörns Daníelssonar, segir að faðir sinn hafi selt Sundhana til Patreksfjarðar. Í ritröðinni Íslensk skip, bátar 1, er greint frá Sundhana BA 57, skipaskrárnúmer 5719, og er hann sagður smíðaður í Hvallátrum 1953. Fer ekki á milli mála að þetta er bátur Sveinbjörns Daníelssonar, en uppgefið smíðaár er rangt. Sundhani var talinn ónýtur og tekinn af skipaskrá 24. nóvember 1986.
Heimildir: Aðalsteinn Eyjólfur Aðalsteinsson fyrrv. verkstjóri, Háaleitisbraut 107, Reykjavík, kt. 0508232969. Viðtal 6. júlí 2004.
Þórður Sveinbjörnsson útgefandi, Miðvangi 6, Hafnarfirði. Viðtal 5. júlí 2004.
Jón Björnsson 1999. Íslensk skip, bátar 1, bls. 75. Reykjavík.
Main information
Dating
1940
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: T
"Museumnumber b": 1983-101
Dimensions
190 x 57 x 128 cm
200 g
Lengd: 190 Breidd: 57 Hæð: 128 cm
Place
Staður: Fossá m/Hamri , 451-Patreksfirði, Vesturbyggð, Hjarðarnes, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Keywords
Keyword: Bátavél
References
Heimildarmaður: Aðalsteinn Eyjólfur Aðalsteinsson fyrrv. verkstjóri, Háaleitisbraut 107, Reykjavík, kt. 0508232969. Viðtal 6. júlí 2004, tekið af Ágústi Ólafi Georgssyni.
Heimildarmaður: Þórður Sveinbjörnsson útgefandi, Miðvangi 6, Hafnarfirði. Viðtal 5. júlí 2004, tekið af Ágústi Ólafi Georgssyni.
Jón Björnsson 1999. Íslensk skip, bátar 1, bls. 75. Reykjavík.
Place of origin
65°32'37.5"N 23°3'20.4"W
