Klyfberi

1900 - 1950
In preservation at
National Museum of Iceland
Klyfberi, smíðaður úr birki, með klökkum úr hreindýrshorni, þremur talsins. Mest breidd við fjalir 8,6 cm, en mest þykkt 6,4 cm, klakkar eru mislangir, sá sem er yst til hægri 9,8 cm á lengd, miðklakkurinn 6,2 cm, og sá sem er yst til vinstri 9,4 cm, þvermál mest 2,8 cm. Stúfar ganga út frá boga í göt beggja megin, og eru samskeytin styrkt með trétittum. Sneitt er af brúnum á boganum að framan og aftan og ofan af innri brúnum á hliðarfjölum. Gegnum fjalirnar eru boruð fjögur göt, kringlótt, tvö að framan og tvö að aftan sitt hvoru megin, snærisspottar þræddir í götin á vinstri hliðinni, og hanga í þeim sprotar úr leðri, tveir, lengd um 47 cm, með fúa götum að endilöngu, en andspænis er ól milli tveggja gata. Brúnir lítið eitt eyddar og sjá má flekki. Klyfbera þennan hefur smíðað Jón Jónsson, bóndi á Bessastöðum, faðir gefanda og er hluturinn úr búi hans. Er þetta sagður vera fullkominn Fljótsdalsklyfberi, smíðaður úr viði úr Hallormsstaðaskógi. Á voru þrjár gjarðir, eins og alltaf tíðkaðist eystra. Samanber Landbúnaðarsafn.

Main information

Jón Jónasson, Attributed
Donor:
Sigfús Jónsson
Dating
1900 - 1950
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1964-102
Dimensions
6.7 x 5.3 x 0.7 cm Lengd: 6.7 Breidd: 5.3 Hæð: 0.7 cm
Place
Staður: Bessastaðir, 701-Egilsstöðum, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalur, Ísland
Exhibition text
Klyfberi með tveimur klökkum og miðklakki og þremur gjörðum. Smíðaður úr birki úr Hallormsstaðarskógi af Jóni Jónssyni bónda á Bessastöðum í Fljótsdal á fyrri hluta 20. aldar. 1964-102 Klyfberi með tveimur klökkum og miðklakki og þremur gjörðum. Smíðaður úr birki úr Hallormsstaðarskógi á Austurlandi, á fyrri hluta 20. aldar. 1964-102 Spjaldtexti: Klyfberi til að reiða með hey og varning. Pack saddle for carrying hay and other goods on horseback.
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Klyfberi

Place of origin

65°3'15.9"N 14°55'25.9"W