Munsturbók

1780 - 1800
In preservation at
National Museum of Iceland
Sjónabók (útsaumsbók / munsturbók), væntanlega frá 1780-1800. Þetta er hin svonefnda Fjarðarhornsbók. Bókarkápan er úr pappa og ytra byrðið hefur verið litað dökkbrúnt. Í bókina eru teiknuð fjöldamörg útsaumsmunstur, bæði myndir, stafir, blóm og önnur munstur. Flest eða öll munstrin eru teiknuð á bakhliðar gamalla sendibréfa. Bókin er teiknuð af Katrínu Þorvaldsdóttur (f. 1765, d. 182) á Fjarðarhorni. Bókin hefur lengi verið í vörslu Þjóðminjasafnsins, en hún var á sínum tíma afhent frá Kjörseyri í Strandasýslu til athugunar í safninu. Það var Ragnhildur Finnsdóttir, Bæ í Strandasýslu, sem afhenti bókina á 7. áratugi 20. aldar. Katrín Þorvaldsdóttir var móðir Matthíasar á Kjörseyri, sem var afi Ragnhildar Finnsdóttur á Bæ (hún var fædd á Kjörseyri og var dóttir Finns á Kjörseyri). Bókin er orðin nokkuð slitin meðfram brúnum, bandið er slitnað og kápan orðin mjög lúin. Útsaumsmunstrin eru þó öll enn mjög skýr. Bókin var í ljósu umslagi sem á er skrifað og vélritað: „Fjarðarhornsbók“ Fr. Ragnhildur Finnsdóttir Bæ, Strandasýslu. Útsaumsbók, teiknuð af Katrínu Þorvaldsdóttur (d. 20.1.1820) [Katrín lést reyndar að öllum líkindum 26.1.1820] á Fjarðarhorni móður Matthíasar á Kjörseyri afa míns R. Finnsd. Ákveðið var að varðveita umslagið með bókinni.

Main information

Dating
1780 - 1800
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2008-14
Dimensions
17 x 12 x 0.7 cm Lengd: 17 Breidd: 12 Hæð: 0.7 cm
Place
Staður: Kjörseyri 1, 500-Stað, Húnaþing vestra, Hrútafjörður, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Munsturbók

Place of origin

65°15'2.8"N 21°9'6.0"W