Pálstafsblað
900 - 1000

In preservation at
National Museum of Iceland
Leifar af öxi eða pálstafsblaði. Pálstafir eru að mestu ókunn vopn, að minnsta kosti úr járni (sbr. annars nr. 114), og er mér næst að ætla, að þetta muni heldur vera hið þykkvasta af öxi fyrir neðan augað, enda virðist hér móta fyrir auganu. Hvers konar öxi það hafi verið, verður eigi séð, en mjög þunn hefir hún orðið að vera, með því að hún er meira eydd af ryði en allt annað, er með henni fannst og sjálfsagt hefir legið jafnlengi í sömu jörðu, enda er líklegt, að axir fornmanna hafi verið mjög þunnar, er þeir báru þær í annari hendi sem sverð, en skjöld í hinni. Maður sá, er þetta hefir átt, hefir því haft meira en alvæpni, er hann hefir haft skjöld, sverð, spjót, týgilkníf og enn öxi (eða pálstaf).
Main information
Donor: Jón Sigurðsson
Dating
900 - 1000
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 5
"Museumnumber b": 1863-6
Dimensions
8.5 x 4.4 cm
Lengd: 8.5 Breidd: 4.4 cm
Place
Staður: Baldursheimur 1, 660-Mývatni, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Exhibition text
Axarblað frá 10. öld, munni og skalli ryðgaðir af. Úr kumli karlmanns sem fannst hjá Baldursheimi í Mývatnssveit árið 1860 og varð til þess að Forngripasafnið, síðar Þjóðminjasafn Íslands var stofnað árið 1863.
5
Axarblað frá 10. öld, munni og skalli ryðgaðir af. Úr kumli karlmanns sem fannst hjá Baldursheimi í Mývatnssveit árið 1860 og varð til þess að Forngripasafnið, síðar Þjóðminjasafn Íslands var stofnað árið 1863.
5
Spjaldtexti:
Öxin er brotin um auga og eggin af.
The axe is broken at the handle-socket, and the edge of the blade is broken
off.
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá_Munir
Undirskrá: Fundaskrá
Keywords
References
Aarbøger for nordisk Oldkyndighed og Historie 1882. Bls. 70-71. Kristín Huld Sigurðardóttir: "Haugfé. Gripir úr heiðnum gröfum." Hlutavelta tímans. Menningararfur á Þjóðminjasafni. Rvk. 2004, bls. 64-75, axir 70-71.
Kristian Kålund: Bidrag til en historisk-topografisk beskrivelse af Island II. Kmh. 1879-82. Bls. 169. (Ísl. þýð.: Íslenskir sögustaðir I-IV. Rvk. 1984-86).
Kristján Eldjárn: Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Rvk. 1994, bls. 1.
Sami: Kuml og haugfé. Rvk. 2000, bls. 200- 203, 345-48.
Sami: "Þórslíkneskið svonefnda frá Eyrarlandi." Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1982. Rvk. 1983, bls. 62 - 75.
Sigurður Guðmundsson. Skýrsla um Forngripasafn Íslands I. Rvk. 1868, bls. 5 - 51.
Þjóðólfur XIV, 70-71.
Place of origin
65°31'12.0"N 17°3'24.1"W



