Skjaldarbóla

900 - 1000
In preservation at
National Museum of Iceland
Skjaldarbóla eða bukl af skildi. Það er kollótt bóla, sem upprunalega hefir verið hérumbil 3 1/3 þumlúngs þvert yfir, en 1 þumlúngur og 7 línur á hæð, með barði allt í kríng að neðan, og hafa í því verið naglar, sem bólan hefir verið fest með við skjöldinn. Skjöldur þessi hefir að öllum líkindum verið buklari og mun hafa verið járnrendur, því að hinir lausu naglar, er fundust hjá honum, eru fleiri en svo, að þeir geti eingaungu verið úr bólunni, og eru þá líklega úr skjaldarröndinni. Lík bóla og þessi hefir fyrir nokkru síðan fundizt í Hildishaugi (landnámamanns), sem er nálgt Kirkjubæjarklaustri á Síðu. Vér höfum því þegar tvenn rök fyrir því, að buklarar muni hafa verið hafðir hér í heiðnum sið, þó að hinar elztu sögur vorar geti sjaldan um þá. Þeirra er optar getið á Sturlúnga öld, og virðast þeir þá hafa verið orðnir tíðari.

Main information

Dating
900 - 1000
Object-related numbers
Museumnumber a: 7 "Museumnumber b": 1863-8
Dimensions
11 x 3.4 cm Lengd: 11 Breidd: 3.4 cm
Place
Staður: Baldursheimur 1, 660-Mývatni, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Exhibition text
Skjaldarbóla, sem setið hefur yfir gati í miðjum skildi sem mundriðinn lá yfir um og hlífði hún höndinni fyrir höggum. Úr kumli karlmanns frá 10. öld er fannst á Baldursheimi í Mývatnssveit árið 1860 og varð til þess að Forngripasafnið, síðar Þjóðminjasafn Íslands, var stofnað árið 1863. Skildirnir sjálfir voru úr tré og hefur sjaldnast neitt varðveist af þeim nema helst brot af járnrönd og naglar, og svo var hér. 7 Skjaldarbóla, sem setið hefur yfir gati í miðjum skildi sem mundriðinn lá yfir um og hlífði hún höndinni fyrir höggum. Úr kumli karlmanns frá 10. öld er fannst á Baldursheimi í Mývatnssveit á Norðurlandi árið 1860 og varð til þess að Forngripasafnið, síðar Þjóðminjasafn Íslands, var stofnað árið 1863. Skildirnir sjálfir voru úr tré og hefur sjaldnast neitt varðveist af þeim nema helst brot af járnrönd og naglar, og svo var hér. 7 Spjaldtexti: Skjaldarbólan (a) er í brotum og hjá henni eru naglar, líklegast af skjaldarröndinni. The shield boss (a) is broken; nearby are nails, probably from the rim of the shield.
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Keywords
Keyword: Skjaldarbóla
References
Aarbøger for nordisk Oldkyndighed og Historie 1882. Bls. 70-71. Kristian Kålund: Bidrag til en historisk-topografisk beskrivelse af Island II. Kmh. 1879-82. Bls. 169. (Ísl. þýð.: Íslenskir sögustaðir I-IV. Rvk. 1984-86). Kristín Huld Sigurðardóttir: "Haugfé. Gripir úr heiðnum gröfum." Hlutavelta tímans. Menningararfur á Þjóðminjasafni. Rvk. 2004, bls. 64-75, skildir bls. 71. Kristján Eldjárn. Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Rvk. 1994, bls. 1. Sami: Kuml og haugfé. Rvk. 2000, bls. 200- 203, 350. Sami: "Þórslíkneskið svonefnda frá Eyrarlandi." Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1982. Rvk. 1983, bls. 62 - 75. Oluf Rygh: Norske Oldsager. Kristiania 1885. Nr. 562 eða 563. Jan Petersen: De norske Vikingesverd. Videnskapsselskapets skrifter II. Kristiania 1919. Bls. 47. Sigurður Guðmundsson. Skýrsla um Forngripasafn Íslands I. Rvk. 1868, bls. 37 - 51. Þjóðólfur XIV, 70-71.

Place of origin

65°31'12.0"N 17°3'24.1"W