Handrit, skráð e. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Skrifuð rímna- og
kvæðabók, sem halda má að Sigfús Jónsson að Laugalandi í Eyjafirði hafi
ort og skrifað. Þetta er kver með tréspjöldum, dökkbrúnt skinn á
kili og hornum, en yfir spjöldum að utan gulleitur, módröfnóttur gljápappír.
Hæð 13,7 cm, breidd 8,9 cm og þykkt 2,7 cm. Hvítur pappír, skrifað
með brúnu bleki, í kverinu 181 tölumerkt síða, en titilblað og saurblað
fremst og aftast. Ein hönd og vel skrifað. Þetta letrað á titilsblaðið:
"Nokkrar / einstakar Rímur / af ýmsum / og / Smá = Qveðlingar,
/ orktir af / Dannibrogsmanni / Sigfúsa Jónssyni."
Skeytt er við hálfri
síðu aftan við bls.166, eitt blaðanna laust, band laslegt og kverið velkt
orðið og skellótt. Skrifað á aftasta saurblaðið: "Velæruverðugum
presta / Sr. H. Einárss. Martaeins / a / Miklagarði."
Gefandi fékk bók
þessa hjá Guðrúnu Benediktsdóttur frá Breiðamýri. Hann giskar á að
móðir hennar, sem erfði fyrir mörgum árum systur sína Kristínu, til heimilis
í Eyjafirði, hafi átt hana, og þannig sé hún komin frá Eyjafirði. Hann
telur Sigfús gert hafa.
Main information
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1962-9
Dimensions
13.7 x 8.9 x 2.7 cm
Lengd: 13.7 Breidd: 8.9 Hæð: 2.7 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Handrit, skráð e. hlutv.