Skírnarfontur

1657
In preservation at
National Museum of Iceland
Úr aðfangabók: Skírnarfontur, úr Skálholtskirkju, hann er allur úr tré, og víða gyltur, áttstrendur í laginu að ofan, og nokkuð uppvíður, og á brúninni efst með breiðum listum, eða útskotum, og gylt sumstaðar; utan á honum umhverfis eru englamyndir málaðar, þ. e. engilshöfuð með ýmislega löguðum vængjum og fjöðrum, og svo gyltir listar í kring á hverjum fleti. Þessi skírnarfontur stendur á fæti með stétt undir, og upp með fætinum í kring fjórar bríkur  gyltar á röndunum. Að ofanverðu alt í kring fyrir ofan myndirnar er gylt lína, með nokkuð breyttu latínuletri, á gamalli dönsku; á tveimur fyrstu flötunum eru stafirnir máðir af, en á hinum sex stendur þannig:   | . . . . .| . . . . .| Börn | kome. til | mig og | forhindre | dem. ikke. | Marc: 10 | *  Að neðan umhverfis stendur og með gyltum stöfum, nema á einum fletinum er máð af, en sést að eins óglöggt til þriggja stafa:   | Till | Sc(ál)h | holts | kirke | af Íslands | . . . . . rni(e?) | forerit | Anno. 1657 |.** Að ofan er skírnarfonturinn lagður með þynnum (plötum) úr tini, og sett með englamyndum***; hann er 1 al. og 16 þuml. á hæð, og 1 al. og 3 þuml. í þvermál að ofan, hann hefir verið skrautlegur og vel gjörður. *Athugasemd, handskrifuð í prentaða skýrslu safnsins: Letrið er þannig: LADER SMAA BØRN KOME, TIL MIG, OC FORHINDRER DEM ICKE MARC: 10 **Athugasemd, handskrifuð í prentaða skýrslu safnsins: Letrið er þannig: TILL SCAALL HOLTS KIRKE AF ISLANDS COMPAGNIE FORBÆRIT ANNO 1651 ***Athugasemd, handskrifuð í prentaða skrýrslu safnsins: Þetta er misskilningur; þynnur þessar eða plötur (þær hafa verið 2-3) eru barmur tinskálar þeirrar sem heyrir til fontinum og jeg hefi látið setja saman og endurbæta. Sbr. ennfr. nr. 1028; þau brot hafa orðið eptir heima hjá Sig. Guðm., en eru víst sömu þynnurnar (plöturnar), sem hjer ræðir um. M.Þ.

Main information

Dating
1657
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 886 "Museumnumber b": 1872-17
Dimensions
107.8 x 0 cm Lengd: 107.8 cm
Place
Staður: Skálholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Exhibition text
Skírnarfontur, úr Skálholtskirkju, hann er allur úr tré, og víða gyltur, áttstrendur í laginu að ofan, og nokkuð uppvíður, og á brúninni efst með breiðum listum, eða útskotum, og gylt sumstaðar; utan á honum umhverfis eru englamyndir málaðar, þ. e. engilshöfuð með ýmislega löguðum vængjum og fjöðrum, og svo gyltir listar í kring á hverjum fleti. Þessi skírnarfontur stendur á fæti með stétt undir, og upp með fætinum í kring fjórar bríkur  gyltar á röndunum. Að ofanverðu alt í kring fyrir ofan myndirnar er gylt lína, með nokkuð breyttu latínuletri, á gamalli dönsku; á tveimur fyrstu flötunum eru stafirnir máðir af, en á hinum sex stendur þannig:   | . . . . .| . . . . .| Börn | kome. til | mig og | forhindre | dem. ikke. | Marc: 10 |  Að neðan umhverfis stendur og með gyltum stöfum, nema á einum fletinum er máð af, en sést að eins óglöggt til þriggja stafa:   | Till | Sc(ál)h | holts | kirke | af Íslands | . . . . . rni(e?) | forerit | Anno. 1657 |. Að ofan er skírnarfonturinn lagður með þynnum (plötum) úr tini, og sett með englamyndum; hann er 1 al. og 16 þuml. á hæð, og 1 al. og 3 þuml. í þvermál að ofan, hann hefir verið skrautlegur og vel gjörður.
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
References
Þjóðminjasafnið - Svona var það.  Byggt á Leiðarvísi fyrir Forngripasafnið frá 1914 eftir Matthías Þórðarson.  Reykjavík, 2003.

Place of origin

64°7'38.6"N 20°31'27.2"W