Kóróna

In preservation at
National Museum of Iceland
Ein af fimm kórónum sem varðveittar eru í safninu og notaðar voru til útiskreytinga á höfninni í Reykjavík og í nágrenni hennar þegar Friðrik konungur 8. heimsótti Ísland árið 1907 og þegar Kristján 10. kom hingað árið 1921. Ekki er vitað hvort þær voru notaðar í síðari heimsóknum hans. Í það minnsta ein þeirra, líklegast sú stærsta (nr. 14896), var að öllum líkindum notuð á þjóðhátíðinni 1874, þegar Kristján konungur 9. kom til landsins og afhenti Íslendingum stjórnarskrána, sbr. tréstungu nr. Lpr-1837-2, sem varðveitt er í Þjóðminjasafninu. Hún hefur svo væntanlega verið endurnýtt í síðari heimsóknum konunga. Í bókinni Þjóðhátíðin 1874 eftir Brynleif Tobiasson (útg. 1958) segir á bls. 39: „Meðfram allri brygjunni voru settar flaggstengur með litlu millibili, en milli þeirra blómsveigar. Efst á bryggjunni var tilkomumikill heiðursbogi, með fánum og blómum, og efst á honum var stór, logagyllt konungskóróna úr kopar, sem franskir sjóliðar gáfu, enda hjálpuðu þeir til að koma öllu fyrir með smekkvísi. Upp eftir allri bryggjunni skyldi breitt purpuralitað teppi, þegar konungur og fylgd hans stigi á land.“ Upphaflega fylgdi kórónunni blár púði (sbr. eldri skráning) en hann hefur nú glatast. Kórónurnar komu í Þjóðminjasafnið úr Alþingishúsinu árið 1951 en þar eru enn varðveittar fleiri slíkar.  Eldri skráning: Ýmsir munir sem verið hafa í Alþingishúsinu:  a. Fimm kórónur úr látúni. Af barokk-gerð. Frá konungskomunni 1907:     14892: kóróna, þvm. (neðst) 24 sm, bláklæddur púði fylgir,   14893: kóróna, þvm. 24.5 sm, bláklæddur púði fylgir,   14894: kóróna, þvm. 45.5 sm, bláklæddur púði fylgir,   14895: kóróna, þvm. 46 sm, bláklæddur púði fylgir,   14896: kóróna, þvm. 60 sm, bláklæddur púði fylgir,    

Main information

Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 14896 "Museumnumber b": 1951-138
Dimensions
60 x 0 cm Lengd: 60 cm
Place
Staður: Alþingi, Kirkjustræti 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Kóróna

Place of origin

64°8'48.4"N 21°56'24.6"W