Súpuskeið
1824

In preservation at
National Museum of Iceland
Súpuskeið úr silfri, ausan sporöskulöguð 11,1 cm að lengd, 7,6 cm breið og 4,0 cm dýpt, gerð úr 1,5 mm þykku silfri. Skaftið lóðað við annan langa bogann. Það er mjög bratt upp frá ausubarminum og er 29,8 cm langt. Efst er það tungumyndað venjulegt skeiðarskaft, 3,9 cm breitt mest, og þar eru grafnar á það að ofan 2 greinar með blöðum báðum megin. Aftan á skaftinu eru 4 stimplar, hver upp af öðrum. Efst eru 3 turnar, merki Kaupmannahafnar, og talan 24 undir ( þ.e. ártalið 1824), þá stórt N, sem er einkennisstafur Christian Peder Næboes, er var silfurvörður 1823 - 27, þá meistaramerkið CJ, er mun vera Jens Chr. Jörgensen, fyrst nefndur sem meistari 25/1 1816 og loks mánaðarmerkið, hyrndur hrútur, þ.e. 20 marz - 20 apríl. Allir þessir stimplar hafa einnig verið á ausunni sjálfri að aftan, en einn þeirra meistaramerkið, sést ekki nú. Oscar Clausen hefur selt safninu þessa skeið.
Main information
Donor: Óskar Clausen
Dating
1824
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 11445
"Museumnumber b": 1933-13-2
Dimensions
11.1 x 7.6 x 0 cm
Lengd: 11.1 Breidd: 7.6 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Súpuskeið