Skjöldur, skráð e. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Úr aðfangabók: Krínglóttur skjöldur úr kopar, sem var undir hinum fyrnefnda hurðarhríng Hann er allur með gegnum-höggnum hríngrósum í býzönskum stíl, sem 3 dýr smjúga í gegnum: rósirnar hafa upprunalega sameinazt í miðjunni, og þá hefir þar ekkert gat verið, en seinna hefir verið höggvið ferhyrnt gat á skjöldinn fyrir kenginn á hurðarhríngnum. þessi skjöldur mun eflaust fyrst hafa verið gjörður til að vera framan á söðli. Eg hefi séð þá öldúngis af sömu gjörð á söðlum. Kirkjur Íslands (text: Þór Magnússon): Gripirnir voru sendir safninu af sr. Páli Sigurðssyni í Miðdal árið 1870.  Sigurður Guðmundsson telur að hringurinn muni ekki upphaflega úr kirkjuhurð, sem þó er vart ástæða að efa.   Ekki var óþekkt, að skildir af reiðbúnaði væru settir undir kirkjuhurðarhringi, svo er t.d. í Haukadal. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 3.2.2011)

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 770 "Museumnumber b": 1870-19
Place
Staður: Miðdalakirkja, Kirkjan, 806-Selfossi (Reykholt), Bláskógabyggð, Laugardalur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
References
Kirkjur Íslands.  3. bindi. Ritstjórar: Árni Björnsson,  Þorsteinn Gunnarsson.  Reykjavík 2002.

Place of origin

64°14'39.5"N 20°39'27.3"W