Handlína

1800
In preservation at
National Museum of Iceland
Hvít (ljós) handlína úr bómull, en hún e földuð á tvo gagnstæða vegu, en jaðar er á efninu á hina tvo.  Bekkur ísaumaður með ídregnu spori er með kantinum allt  í kring.  Á miðju handlínunnar og í hornum eru ísaumuð munstur með flatsaumi og ídregnu spori.  í hverju horni myndar munstrið reit og er einn bókstafur í hverjum þeirra þ.e. D A C N.* Garnið sem saumað er með er í ljósum litum, brúnleitum, grænleitum og er allgróft silkigarn.   Handlína þessi er frá Heydölum í Breiðdal, úr eigu Ingibjargar Högnadóttur konu Ara Brynjólfssonar þingmanns d:1912. *Líklegra er að stafirnir séu CVDA og eigi að lesast í þessari röð, þ.e. C... V...dóttir á. Áletrun er jafnframt í reit fyrir miðri handlínunni. Þar stendur: IESU GESTUR ER EG I DAG, þ.e. Jesú gestur er ég í dag. (Freyja Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttir, maí 2022).

Main information

Dating
1800
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1979-34
Dimensions
86.5 x 83.5 cm Lengd: 86.5 Breidd: 83.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Handlína