Baukur, óþ. hlutv.

1881
In preservation at
National Museum of Iceland
Leirbaukur, gerður úr rauðbrunnum leir, með hvítleitum glerungi um stútinn og botninn, en brúnum í milli: mætast litirnir í oddum, með brúnum deplum í ljósu odddunum, svo að líkist búnaði eða útskurði um stútinn og stjett. Lagið er sem á flötum bauk úr horni, 16,2 að h., 2,3 cm. að þverm. um stút, þ. 3,8 cm. neðst og br. þar 10,8 cm. Í bugnum að framan er sem áföst pípa, lokuð að neðan en opin að ofan. Fyrir neðan hana hefur verið eyra eða eitthvað þess konar, en hefur farið af. Gefandi kvað bauk þennan fundinn af Halldóri nokkrum Jónssyni árið, 1881 í flagi einu skamt frá veginum á Fjarðarheiði í Múlasýslu.

Main information

Dating
1881
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2587 "Museumnumber b": 1884-105
Dimensions
16.2 x 0 x 0 cm Lengd: 16.2 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Fjarðarheiði, Múlaþing
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords