Drykkjarhorn

1706
In preservation at
National Museum of Iceland
Drykkjarhorn með tinstút annars vegar. Á það er grafin einskonar akkerismynd, og slær sér fiskur í tvær bugður utan um legginn á því. Hinsvegar er grafinn á það ofanvert einskonar nafnhnútur (monogram): Þ.M.S. eða M. Þ. S. með latínuletri. Þar fyrir neðan sjást myndaðir tveir menn, og er annar þeirra með stóran barðahatt á höfði, þraungva peisu að ofan, sem virðist að vera girt ofan í brækurnar. Eitthvert útflúr sést og að utanverðu á peisu-ermunum, og er brydding sýnd framan á þeim. Hann ber stuttvíðar brækur með fjórum hnöppum á lærinu. Hann hefir eins og belti um sig, eða það er brókarstrengurinn eða haldið. Á fótum hefir hann stígvél eða reiðsokka: staf í hendi, stuttan með hún á, og litla tóbakspípu í munni sér. Hinn maðurinn hefir húfu á höfði, eins og með uppbroti, og með eins og uppbrettu deri aptan og framan 1). Hann hefir síða yfirhöfn, hnepta að framan. Ermarnar eru þraungvar og virðast að vera með fimm hnöppum að utanverðu og brydding að framan. Hann hefir stígvél eða reiðsokka á fótum, og sýpur á mjórri endanum á horni, sem hann heldur á í vinstri hendi, en í hægri hendi heldur hann á poka eða skinnskál, þó með einum botni, að neðanverðu við botninn er grafið allt í kring með latínuletri: „anno, ultimi, seculi, 1706, 17 cal. julíj“ Það hefir ávallt veri drukkið úr mjórra enda þessa horns 2). Það er mjög einkennilegt og bendir á ýmsa háttu og klæðabúnað manna um 1700, sem menn annars þekkja miður en skyldi, og væri mjög fróðlegt að fá margar slíkar myndir, enda þótt þær í fyrsta áliti sýnist opt illa gjörðar: þær geta samt opt verið merkilegri en margar myndir, sem eru betur gjörðar. 1). Það mun öllu fremur eiga að vera uppbrotin stafnahetta, sem mjög tíðkaðist fyrrum í Þingeyjarsýslu: þær gengu í odd niður á brjóstið og herðarnar, en þegar þær voru brotnar upp, voru þær með hvössum oddum aptan og framan, líkustum stöfnum á húsi. Um þær er víða getið, og helzt í kvæðum, sjá Eitt kvæði, hvernig ýngismenn hrósa sér fyrir stúlkum: Hettu á eg hér með bláa, heldur víða og stafnaháa: ymsir borðar á henni gljáa alt er það til þíngað. Því kom eg hingað góðan hlut af glitinu smáa gaf mér faðir minn eptir sig. Heiðurs vífið, hvernig lízt þér á mig? 2). Í Biskupasögum I, 877 er getið um drykkjrstúta tvo búna 1331,og getur vel verið að það sé horn, sem drukkið var úr mjórra endanum á: sbr. orðatiltækið: að stúta sig..

Main information

Dating
1706
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 380 "Museumnumber b": 1867-22
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Drykkjarhorn