Mannabein

In preservation at
National Museum of Iceland
Mannabeinaleifar mjög fúnar: helzt er höfuðkúpan, ekki heil þó: hún er fremur þunngerð eða flöt og vantar mikið af vinstri hlið hennar. Hún er 18,3 að l. og 9,5 að br. um gagnaugun. Neðri skoltur vel hálfur, hægri hluti, tannlaus, en nokkrir lausir jaxlar fylgja, örslitnir. Er þetta sýnilega úr gamalmenni, líklega konu. Lærleggir eru báðir: l. 43,3, sem bendir á lágan vöxt. Beinaleifar þessar fundust ásamt gripunum nr. 7706 - 7707 síðast liðið ár ( 1917 ) í forndys við Þorvaldsdalsá á Árskógsströnd og voru sendar safninu ásamt hestsbeinaleifum úr hrossdys, sem fannst skamt frá, og nr. 7709 - 10, er með þeim beinum, nr. 7708 voru, af Kristjáni Eldjárn Kristjánssyni, bónda á Hellu á Árskógsströnd. Skýrsla hans um fundinn er á þessa leið, dags. 18. febr. 1919: Mannsdysin var 7 m. austanvið gamla sýsluveginn og um 55 m. sunnanvið Þorvaldsdalsá ( fossinn ). Lá hún frá vestri til austurs og leið helzt út fyrir, að maðurinn hefði verið grafinn uppi-sitjandi (mót austri ) og fallið saman, eptir ummáli dysjarinnar og legu beinanna að ráða. Hjá þeirri dys var lagvopnið ( þ.e. járnið nr. 7706 ), rjett hjá beinunum. Hestsdysin var 5 m. norðar. Þar í bein af einum hesti og innanum beinin ( nr. 7708 a ) nokkur smá járn ( kengur, naglar o. fl. : sbr. nr. 7709 - 10 ) Benti það til, að hesturinn hefði verið grafinn með reiðtygjum. Landslagi er svo háttað, að heiðmóar eru austanvert við dysjarnar, en meleyrar vestan- og norðan- til. Ef til vill hafa móarnir náð lengra vestur til forna og smátt og smátt fokið úr barðinu og þá jafnframt þynnst jarðvegur á dysjunum, því að niður að beinunum var ekki nema ca. 20 cm. þykkt leirmoldarlag og harður melur undir. Á síðast liðnu vori var haldið áfran vegagerð norðanvið ána og grafið þar í melhól og var þá komið niður á hestsbein, lítið fúin. Sendi jeg þau bein ásamt hinu suður. Voru bein þau ljósari útlits. Vel má vera að í þessum melhól felist eitthvað markvert, en nokkurt verk er að rannsaka það. Hóll þessi er fáa metra norðanvið foss í ánni og mótsvið dysina sunnan árinnar. Þessi önnur hestsbein eru með tölumerkinu 7708 b.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 7705 "Museumnumber b": 1918-99
Dimensions
18.3 x 9.5 x 0 cm Lengd: 18.3 Breidd: 9.5 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Stærri-Árskógur, 621-Dalvík, Dalvíkurbyggð, Árskógsströnd, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Keywords
Keyword: Mannabein

Place of origin

65°55'2.2"N 18°21'4.6"W