Tóbaksbaukur

In preservation at
National Museum of Iceland
Tóbaksbaukur, tré.
Tóbaksbaukur, eins
í laginu og n.nr. á undan, all ávalur, skorinn í dökkan við að mestu leyti
og basaðu, l. um 13,9 cm, br 6,5 cm o gþ. 3,7 cm. Stúturinn úr rauðum viði,
eilítið ljósari en bolur, 2 cm á l., felldur í enda, kringlóttur í þverskurði
og að framan hnúðlaga, en gjörð úr silfri umhverfis miðjan hnúð, vídd við
opið á stút 0,8 cm, tappinn er úr rauðum viði, lítið eitt ljósari á lit
en stútur, kringlóttur í þverskurði, 3,1 cm á l., með aflöngum hnúð og
í hann gerð íhvolf mjódd við miðju og umhverfis, á brúninni á belgnum,
1,3 cm frá samskeytunum hjá stút, er lítið auga úr kopar, gert fyrir tappafesti,
í enda að aftan er skrúfuð löpp, smíðuð úr rauðum viði, eins á lit og tappinn
í stút, l. 2,6 cm og með sams konar haus og er á tappanum. Allur er baukurinn
bæsaður utan. Lagið á bol reglulegt að kalla og yfirborð þar slétt vel.
Spanskgrænuhúð á auganu fyrir festi
og spanskgrænubletti má sjá á gjörðinni um stút.
Að sögn var tóbaksbaukur þessi
í eigu Gísla Konráðssonar, fræðimanns (1787-1877). Sbr. Ísl. Æviskrár,
II, bls. 66-67.
Main information
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: Á-367
Dimensions
13.9 x 6.5 x 3.7 cm
Lengd: 13.9 Breidd: 6.5 Hæð: 3.7 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Ásbúðarsafn (Á)
Keywords
Keyword: Tóbaksbaukur