Ferð um Suðurland.

1938 - 1940
In preservation at
Borgarnes Museum
Ferðafólkið situr fyrir. Jón Björnsson t.v., Björn Franklín, Margrét og Blaka. Í aftari röð, t.v. Selma, Halldór H. og Helga María. Ljósmyndasafn úr dánarbúi Guðrúnar Laufeyjar Jónsdóttur (1910 - 2004) sem var ævinlega nefnd Blaka. Ljósmyndir þessar eru frá Blöku og systkinum hennar. Systkini Blöku voru: Björn Franklín (1908 - 1976), hagfræðingur; Halldór Haukur (1912 - 1992), arkitekt og Sigþrúður Selma (1917 - 1987), listfræðingur. Foreldrar þeirra voru Jón Björnsson (1878 - 1949) frá Bæ, sem var lengi kaupmaður í Borgarnesi og Helga María Björnsdóttir (1880 - 1972) frá Svarfhóli. Jón og Helga fluttu í Borgarnes árið 1906, nánar tiltekið í Kaupang (Brákarbraut 11) sem er elsta húsið í Borgarnesi (byggt 1878). Þar stofnuðu þau fjölskyldu og bjuggu þar í fjörutíu ár eða þangað til þau fluttu til Reykjavíkur 1946.

Main information

Title
Title: Ferð um Suðurland.
Dating
Estimated Age: 1938 - 1940
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2007-35-528
Dimensions
8 x 4 cm
Record type
Classification
Keywords
Keyword: Ferðalag
Keyword:
Fjölskylda
Depiction:
Ferðafólk
Depiction:
Hópur, fólks