Línubyssa, skráð e. hlutv.

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"1273. ,,Línubyssa”. Þessi byssa barst Byggðarsafninu úr dánarbúi Einars heitins Magnússonar, vélsmiðs, sem lézt af slysförurn í smiðju sinni árið 1932. Smiðjan stóð skammt austan við verzlunarhúsið Bjarma (nr. 4) við Miðstræti. Einar Magnússon var kunnur vélsmiður í bænum og hugvitsmaður.
Það er vitað, að Einar vélsmiður smíðaði á sínum tíma „brimbát”, lokaða fleytu úr stáli, sem hann ætlaði að draga mætti milli báts og lands gegnum brimgarðinn við sanda Suðurstrandarinnar, og 1étta þannig vöruflutninga bændafólks úr Rangárvallaog Skaftafellssýslu hinni vestari, en það skipti um langt árabil við verzlanir í Eyjum og átti oft í miklum erfiðleikum við að skipa vörum á land við Sandana, þegar súgur var og erfiðleikar
og hættur steðjuðu að sökum þess. Vegir voru þá litlir eða engir um undirlendi Suðurlandsins. Viðskipti við Eyjar voru fólkinu því mikil nauðsyn. Þessi ætlun eða ráðagerð um bát þennan rann út í sandinn, með því að báturinn reyndist of stór og þungur í drætti milli báts og lands við sandana. Það er ætlun eða ímyndun okkar, að vélsmiðurinn hafði ætlað að nota þessa byssu til að skjóta línu í land, þegar vöruflutningabátinn, vélbátinn, þar að brimgarðinum og draga þurfti vörufleytuna til strandar gegnum brimgarðinn.
1273. Þessi teikning er af „brimbát” Einars vélsmiðs Magnússonar. "
Main information
Object-related numbers
1273
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Línubyssa, skráð e. hlutv.
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.