Sjónauki

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1028. Sjónauki (kíkir). Þennan sjónauka átti Þorsteinn Jónsson, bóndi og alþingismaður í Nýjabæ hér á Heimaey. Hann lézt á alþingi 28. ágúst 1886. Þorsteinn Jónsson var seinni maður frú Kristínar Einarsdóttur húsfr. í Nýjabæ (D.1899). Sjónauka þennan eignaðist Þorsteinn Jónsson árið 1861, þegar hann fluttist vinnumaður austan úr Mýrdal til frú Kristínar Einarsdóttur, sem þá var ekkja Magnúsar Austmanns Jónssonar, alþingismanns og bónda í Nýjabæ. Eftir lát Þorsteins alþingismanns eignaðist Lárus bóndi Jónsson, hreppstjóri á Búastöðum, sjónaukann. Eftir lát hans 1895 erfði Pétur bóndi Lárusson á Búastöðum hlutinn. Ekkja hans, frú Júlíana Sigurðardóttir, fyrrum húsfr. á Búastöðum, gaf Byggðarsafninu sjónaukann. Sjónaukar eins og þessi voru orðnir algeng verzlunarvara í Reykjavik um miðja 19. öldina. "

Main information

Object-related numbers
1028
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Sjónauki
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.