Olíumálverk

1913
In preservation at
National Museum of Iceland
Olíumálverk í gylltum ramma. Verkið sýnir konu sem situr í sófa við glugga. Dagsbirta fellur inn um gardínurnar og lýsir upp andlit hennar. Á borði við hlið hennar eru blóm og bunki af bókum, en fyrir framan hana stendur skemill með opinni bók. Sófinn/bekkurinn er sérstakur að gerð og virðist klæddur ábreiðu eða textíl sem nær upp á vegginn að baki og niður á gólf. Málverkið er líklega danskt. Í horni þess eru málaðir stafirnir C.A. ásamt tölustöfunum 13, sem líklega vísa til ársins 1913. Ekki er vitað hver málaði málverkið. Málverkið er í gylltum, skreyttum ramma. Að aftan er rammanum lokað með pappaspjaldi sem fest er með nöglum. Á spjaldið er handskrifað með bláum lit númerið 13764. Á spjaldið er handskrifað með bláum lit númerið 13764. Einnig er skrifað þar með blýanti: „1166 Inga Magnúsd Tjarnarg 14“. Þar fyrir neðan er texti sem erfitt er að lesa. Í einu horni spjaldsins er skrifað með blýanti: „32 1/2 x 40“. Mál ramma: Hæð 44,5 cm, breidd 52 cm og dýpt 5 cm. Mál verksins: 31 × 39 cm. Málverkið var innblástur að gerð bekkjar (Þjms-2025-13-1), sem tekinn var inn í safneign Þjóðminjasafns Íslands árið 2025. Upplýsingar frá gefendum: Tjarnargata 14 í Reykjavík var fjölskylduhús. Þar bjuggu Sigríður Magnúsdóttir (f. 1886, d. 1952) með eiginmanni sínum prófessor Ólafi Lárussyni (f. 1885, d. 1961). Einnig bjuggu þar tvær systur hennar Ingunn Magnúsdóttir (f. 1889, d.1943) og Lára Magnúsdóttir (f. 1892, d. 1961). Sigríður sá á ferð sinni í Kaupmannahöfn málverk af konu í útsaumuðum sófa og ákvað að gera svipaðan sófa. Þegar heim var komið hófst hún handa og saumaði áklæðið/teppið með einhverri hjálp frá Láru systur sinni. Ingunn sá um útskurðinn. Þær systur voru allar barnlausar, en fjórða systirin Halldóra MÁLFRÍÐUR Magnúsdóttir Einarsson (f. 1894, d. 1946) eignaðist fimm börn með eiginmanni sínum Agli Einarssyni (f.1894, d.1986). Elsta dóttir þeirra Katrín Sigríður Egilsdóttir (f.1923, d. 2001) fór 12 ára gömul til móðursystur sinnar Sigríðar og Ólafs og fór í Verzlunarskóla Íslands. Hún leit á þau sem fósturforeldra sína alla tíð. Katrín giftist Vilhjálmi Jónssyni (f. 1919, d. 2005). Við andlát þeirra hjóna erfði Sigurlaug (f.1953, d. 2024) dóttir þeirra sófann/bekkinn. Ákveðið var að eftir hennar dag færi best á að hann færi á safn. Þjóðminjasafnið tók árið 2025 til varðveislu málverkið og nokkra aðra muni úr dánarbúi Sigurlaugar Vilhjálmsdóttur: bekkur (Þjms-2025-13-1), hilla (Þjms-2025-13-3), askur (Þjms 2025-13-4), rúmfjöl (Þjms 2025-13-5), kaffikanna (Þjms-2025-13-6).

Main information

Dating
1913
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2025-13-2
Place
Site of use: Staður: Tjarnargata 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Olíumálverk
Depiction:
Sófi
Depiction:
Bekkur
Depiction:
Kona

Place of origin

64°8'45.1"N 21°56'38.4"W