Bekkur

1930
In preservation at
National Museum of Iceland
Útskorinn bekkur með glitofnu áklæði. Bekkurinn er svartlakkaður og samsettur úr nokkrum hlutum: tveimur hliðum/örmum með útskurði, dívan, hillu, ofnu áklæði og þverspýtu sem skrúfuð er aftan á hliðarnar. Dívaninn myndar sætið á bekknum og sést ekki þegar bekkurinn er samsettur. Hann er ekki heimagerður líkt og aðrir hlutar bekkjarins heldur keyptur og nýttur við gerð hans. Dívaninn er klæddur bláu efni með blómamunstri. Hliðarnar tvær eru festar saman með þverspýtu sem skrúfuð er í þær að aftan. Öðrum megin á þverspýtunni er grafið X í viðinn og sams konar merking er aftan á annarri hliðinni til að sýna hvernig spýtan á að snúa. Hliðarnar eru með innbyggðum hillum sem snúa inn á við og eru skreyttar útskurði að framan. Á framhlið þeirra er jurtaskraut með bylgjuteinungi. Skrautið er eins á báðum hliðum en snýr sitt á hvað. Talsvert sér á efri hluta armanna eftir notkun. Aftan á annarri hliðinni eru blettir eftir einhvers konar vökva sem hefur slettst á viðinn. Á sömu hlið er skrifað með blýanti „Hæð 37“ og þar á eftir tölustafur eða tákn sem erfitt er að ráða. Meðfram efri hluta bekkjarins er útskorin hilla með svipuðum útskurði og er á hliðunum, þar sem bylgjuteinungur liggur lárétt. Áklæðið er fest við hilluna að aftan og einnig við hliðarnar með sams konar nöglum. Það leggst síðan yfir dívaninn og hylur hann. Áklæðið er glitofið og fóðrað að aftan, en fóðrið er töluvert slitið. Það er litskrúðugt og skreytt ýmsum myndum, meðal annars fuglum og blómum sem minna á túlípana. Fyrir miðju áklæðisins er ártalið 1930. Stærð bekkjar: Hæð: 168 cm Dýpt: 66 cm Breidd: 180 cm Breidd áklæðis:145,5 cm Hæð hillu ofan á:18 cm Armar(hliðar) breidd: 7,5 cm Armar(hliðar) hæð: 85,2 cm Armar(hliðar) dýpt að ofan: 7 cm Upplýsingar frá gefendum: Tjarnargata 14 í Reykjavík var fjölskylduhús. Þar bjuggu Sigríður Magnúsdóttir (f. 1886-d.1952) með eiginmanni sínum prófessor Ólafi Lárussyni (f. 1885-d. 1961). Einnig bjuggu þar tvær systur hennar Ingunn Magnúsdóttir (f.1889-d. 1943) og Lára Magnúsdóttir (f.1892-d.1961). Sigríður sá á ferð sinni í Kaupmannahöfn málverk af konu í útsaumuðum sófa og ákvað að gera svipaðan sófa. Þegar heim var komið hófst hún handa og saumaði áklæðið/teppið með einhverri hjálp frá Láru systur sinni. Ingunn sá um útskurðinn. Þær systur voru allar barnlausar, en fjórða systirin Halldóra MÁLFRÍÐUR Magnúsdóttir Einarsson (f. 1894-d. 1946) eignaðist fimm börn með eiginmanni sínum Agli Einarssyni (f. 1894-d. 1986). Elsta dóttir þeirra Katrín Sigríður Egilsdóttir (f. 1923 - d. 2001) fór 12 ára gömul til móðursystur sinnar Sigríðar og Ólafs og fór í Verzlunarskóla Íslands. Hún leit á þau sem fósturforeldra sína alla tíð. Katrín giftist Vilhjálmi Jónssyni (f. 1919, d. 2005). Við andlát þeirra hjóna erfði Sigurlaug (f. 1953-d. 2024) dóttir þeirra sófann/bekkinn. Ákveðið var að eftir hennar dag færi best á að hann færi á safn. Þjóðminjasafnið tók árið 2025 til varðveislu bekkinn og nokkra aðra muni úr dánarbúi Sigurlaugar Vilhjálmsdóttur: málverk (Þjms 2025-13-2), hillu (Þjms-2025-13-3), ask (Þjms 2025-13-4), rúmfjöl (Þjms 2025-13-5), kaffikönnu (Þjms-2025-13-6). Á fyrri hluta 20. aldar voru konur fáar í stétt myndskera og nutu síður viðurkenningar en karlar, þrátt fyrir hæfileika og listfengi. Því er afar áhugavert að kona sé sögð hafa skorið bekkinn út og eykur það enn á sérstöðu hans.

Main information

Dating
Age: 1930
Object-related numbers
Museumnumber a: 2025-13-1
Dimensions
168 x 180 x 66 cm
Place
Site of use: Staður: Tjarnargata 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Bekkur
Keyword:
Sófi

Place of origin

64°8'45.1"N 21°56'38.4"W