Dragkista

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "881. Dragkista (kommóða). Þessa dragkistu áttu prestshjónin að Ofanleiti, séra Jón Jónsson Austmann og mad. Þórdís Magnúsdóttir. Þau voru búandi að Ofanleiti 1827-1858. Kommóða þessi kvað vera dönsk að uppruna, og eignuðust prestshjónin hana árið 1817, er þau fengu prestakallið að Þykkvabæjarklaustri og settust að á Mýrum. Eftir fráfall séra Jóns J. Austmanns árið 1858 eignaðist Magnús J. Austmann, hóndi, stúdent og alþingismaður að Nýjabæ kommóðuna, en hann var elzta barn þeirra hjóna. Hann lézt árið 1859. Frú Kristín Einarsdóttir, ekkja hans, átti síðan húsgagn þetta alla sína búskapartíð í Nýjabæ eða til dauðadags árið 1899. Við fráfall frú Kristínar Einarsdóttur eignaðist: Þórarinn bóndi Árnason á Oddstöðum kommóðuna og síðan Oddgeir bifreiðarstjóri sonur hans. Oddgeir Þórarinsson gaf hana Byggðarsafninu árið 1958 eða á 100 ára ártíð séra Jóns Austmanns, hins gagnmerka sóknarprests. "

Main information

Object-related numbers
881
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Dragkista
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.