Nálaprilla

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"517. Nálaprilla. Nálaprillur voru einskonar nálhús. Þær voru með nokkrum hólfum, þar sem geymdar voru í nálar af mismunandi gildleika og stærð, svo sem saumnálar, skónálar, fjaðranálar o. s. frv. Í nálaprillum voru oft 3-8 hólf úr fjöðurstöfum. Oft voru notaðar álftafjaðrir. Voru þá gildustu hlutar fjaðranna saumaðir hlið við hlið í dúkpjötlu, og síðan var „lok” úr sama efni fest við og lagt yfir enda fjaðurstafanna. Ýmist var lokið hneppt eða á því var smella, sem var yngri háttur á hafður. Hér í Eyjum var algengt að búa til nálaprillur á þann hátt að bora mismunandi holur í trébút úr hörðu efni. Þessar nálaprillur eru til á Byggðarsafni Vestmannaeyja. Þessi nálaprilla hefur 8 hólf – fjöðurstafi, og hún er með hnepptu loki. Hún er gjöf til Byggðarsafnsins frá frú Ingibjörgu heitinni Jónsdóttur í Hraungerði (nr. 9 við Landagötu) hér í bæ. Hún var frá Ey í Vestur-Landeyjum og var seinni kona Gottskálks Hreiðarssonar, en þau hjón fluttu hingað til Eyja árið 1912. Frú Ingibjörg var fædd 1874 og lézt hér 1969 á 96. aldursári. Móðir hennar átti nálarprilluna, en frú Ingibjörg var 83 ára, þegar hún gaf Byggðarsafninu hana."
Main information
Object-related numbers
517
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Nálaprilla
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.