Heilir skósólar
1912 - 1922
In preservation at
Thorbergur center of culture
Hjónin Jakob Yngvason og Guðrún Kvaran færðu Þórbergssetri að gjöf handrit að ljóðabók eftir Þórberg Þórðarson sem ber þann forvitnilega titil Heilir skósólar og var í eigu móðurafa Jakobs Yngvasonar, skáldsins, málfræðingsins og kennarans Jakobs Jóhannessonar Smára.
Handritið var gjöf skáldsins til vinar síns Jakobs en þeir félagar áttu ýmislegt sameiginlegt. Þeir voru nánast samtíða, þeir fæddust með árs millibili, Jakob var fæddur árið 1889 og lést 1972 en Þórbergur Þórðarson var fæddur árið 1888 og lést tveimur árum síðar en Jakob, árið 1974. Þeir áttu ýmislegt annað sameiginlegt en báðir voru þeir skáld og virkir áhugamenn um íslenskt mál, þar að auki voru báðir mjög áhugasamir um spíritisma sem eins og dulspeki ýmiskonar var áberandi í menningarlífi Íslendinga á fyrstu áratugum aldarinnar síðustu.
Ljóðahandritið er greinilega atlaga Þórbergs að Hvítum hröfnum sem kom út árið 1922 en öll ljóðin í handritinu birtust í þeirri bók. Ljóðin eru ort á árunum 1917-1922 og handritið að öllum líkindum ritað sama ár og Hvítir Hrafnar komu út. En yngsta ljóðið Hjónabandið er samkvæmt Eddu Þórbergs mælt af munni fram í London árið 1922 og fínpússað á Stýrmannastíg 9, heimili skáldsins til margra ára, síðar það sama ár. Flest ljóðin í handritinu eru orðrétt eins og þau eru í Hvítum hröfnum en á stöku stað hefur skáldið gert smávægilegar breytingar, hnikað til orði og orði. Auk handritsins fylgdi stakur miði með einu ljóði gjöfinni. Hann hefur án efa fylgt handritinu þar sem ljóð það birtist einmitt í Hvítum hröfnum.
Main information
Title
Proper noun: Heilir skósólar
Dating
Estimated Age: 1912 - 1922
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: Þ-149
Dimensions
17 x 11 x 1 cm
Keywords
Keyword: Handrit, skráð e. hlutv.



