Kista Þórðar Steinssonar

1850 - 1870
Kistan mun hafa verið smíðuð í Hólum í Hornafirði en komið að Hala með Benedikt Þorleifssyni. Þórður Steinsson, faðir Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar, átti kistuna og stóð hún alltaf við rúmið hans á baðstofuloftinu á Hala. Í kistunni er nú ýmislegt samsafn muna sem ekki voru skráðir sérstaklega. Þar má nefna hagöldur úr horni, sylgjur af hnakkgjörð, lýsiskolu, ullarkamba, smjörfjöl, netanálar, spennistokk, skyttu, mannbrodd með bandi, hurðarkróka, volka, skilvindujárn og hallamál. Ingibjörg Zophoníasardóttir gaf þessa kistu 2006 með þeim munum sem í henni eru. Hún hafði varðveist inn á Hala og var alltaf kölluð litla kistan hans Þórðar.

Main information

Title
Proper noun: Kista Þórðar Steinssonar
Dating
Estimated Age: 1850 - 1870
Object-related numbers
Museumnumber a: Þ-96
Dimensions
35 x 25 x 52 cm
Place
Jörð/Lóð: Staður: Hali, 781-Höfn í Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður
Record type
Keywords