Kot

In preservation at
Textile Museum
Hvítt útsaumað kot. Lengs frá öxl 39 cm. Breidd hvors boðungs frá handvegi að miðju 28 cm. Handvegur og hálsmál saumuð með tungusaumi. Fiðrildi á bringu og bómagreinar saumuð með enskum og frönskum saumi. Faldur fyrir miðju að framan er húllfaldaður, fjögur kappmelluð hnappagöt og fjórar tölur. Tölustafurinn 10 saumaður með rauðum lit í lista. Listi að neðan 5 cm. á breidd. Gefandi er Sigríður M. Sigurðardóttir, Seljahlíð 5 B, 603 Akureyri. Unnið af Sigríði Margréti Ólafsdóttur (1892-1960), frá Búlandi í Arnarneshreppi. Sigríður Margrét Ólafsdóttir var amma gefanda. Hún var mjög góð vinkona Huldu Á Stefánsdóttur, fyrrum skólastýru við Kvennaskólann á Blönduósi.

Main information

Title
Proper noun: Kot
Object-related numbers
Museumnumber a: HIS-2773
Record type
Keywords
Keyword: Nærföt