Vatnslitamynd

1925 - 1930
Vatnslitamynd af Einarhafnarhverfinu á Eyrarbakka, í ramma. Fremst fyrir miðju er Hof sem var æskuheimili gefanda. Myndin mun hafa hangið uppi í Hofi hjá foreldrum Björgvins. Aftan á myndinni er vélritaður miði þar sem fullyrt sé af listfræðingi að myndlistarmaðurinn hafi verið Agnes Lunn dönsk listakona sem dvaldist í Húsinu sumrin 1902 til 1912. Það er ósennilegt sé myndin borin saman við önnur verk eftir Agnesi Lunn. Auk þess er Nýhöfn, sem er til vinstri á myndinni, byggt 1914 eftir að Agnes Lunn hætti að dvelja á Eyrarbakka. Tilgáta Ingu Láru Baldvinsdóttur er að eyrbekkingurinn Sigurjón Ólafsson myndhöggvari (1908-1981) hafi málað myndina þegar hann var að stíga sín fyrstu spor á braut myndlistarinnar. Sjá nánar aðfangabók SjmsEyr bls. 59.

Main information

Dating
1925 - 1930
Object-related numbers
Museumnumber a: SE "Museumnumber b": 1997-1
Dimensions
43 x 57 cm Lengd: 43 Breidd: 57 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Vatnslitamynd

Place of origin

63°51'55.3"N 21°9'28.3"W