Auglýsingaspjald - Rafskinna

1945 - 1957
In preservation at
Reykjavík City Museum
Plakat, teiknað og málað af Jóni Kristinssyni, Jónda í Lambey í Fljótshlíð. Þetta er auglýsingaplakat fyrir mobiloil frá H. Benediktson með slagorðinu: Í hörku frosti hefur hún alla kosti og var sýnt í Rafskinnu, bók með auglýsingum í sem staðsett var í Haraldarbúð í Austurstræti í Reykjavík á árunum 1935-1957 eða þar um bil. Bókin var rafknúin, þ.e. blaðsíður hennar flettust rafknúið. Hver blaðsíða var handmálað spjald með auglýsingu fyrir íslenskt fyrirtæki. Jóndi var um árabil aðal teiknari fyrir Rafskinnu. Jóndi teiknaði allar myndirnar á árunum frá 1945 til 1957 og tók hann við af Tryggva Magnússyni sem hafði teiknað flest allar myndirnar frá 1933. Hann teiknaði nýjar auglýsingamyndir fyrir hverja sýningu, síðast fyrir jólasýninguna 1957. Rafskinna var rafdrifið flettiskilti sem fletti sjálfkrafa auglýsingaspjöldum í sýningarglugga sem var staðsettur á milli Haraldarbúðar í Austurstræti og Hressingarskálans. Tvær sýningar voru árlega, í vertíðarlok í maí og fyrir jól og 64 myndir sýndar á hverri sýningu.

Main information

Title
Proper noun: Auglýsingaspjald - Rafskinna
Dating
1945 - 1957
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2024-27-13
Dimensions
0 x 32 x 47 cm Breidd: 32 Hæð: 47 cm
Record type