Borðstofuborð

1840 - 1880
Borð: sporöskjulaga borðplata (oval), tiltölulega breiður, renndur fótur er undir plötunni og stendur hann á plötu með fjórum útskornum fótum undir. Stólar: fjórir stólar fylgja borðinu, með rauðu, mynstruðu flauels áklæði. Í baki stólanna er þverslá efst og neðarlega er önnur örlítið bogadregin. Renndir fætur eru að framan en einfaldir ferkantaðir að aftan Sófi: tveggja sæta bekkur/sófi fylgir settinu. Á honum er hátt bak og þar fyrir miðju, efst, er útskurður, flúr. Bekkurinn (bæði bak og sæti) er bólstraður með sama efni og stólarnir: rautt, mynstrað flauels áklæði. Armar eru á bekknum sitthvoru megin, klæddir sama efni að ofanverðu, en eru renndir niður. Fætur eru renndir. Þórsteinn Ragnarsson segir frá: „Um borðstofusettið er þetta að segja: Langamma mín, Guðfinna Jensdóttir, prófastsfrú á Miklabæ í Blönduhlíð var fædd og uppalin að Innri-Veðraá í Önundarfirði. Foreldrar hennar voru Jens Jónsson og Sigríður Jónatansdóttir ljósmóðir. Sigríður var af hinu alkunnu Thorbergsætt og var því frú Guðfinna (kona sr. Björns Jónssonar, prófasts á Miklabæ í Blönduhlíð) skyld Bergi Thorberg. Borðstofusettið komst í hendur sr. Björns og frú Guðfinnu á búskaparárum þeirra á Miklabæ að ég tel og var síðan flutt með þeim á Sólheima þegar Guðfinna keypti jörðina og fluttist þangað. Jón, sonur sr. Björns og Guðfinnu var bóndi á Sólheimum. Hann eignaðist settið eftir móður sína og síðan Ragnheiður Jónsdóttir, dóttir Jóns, eftir hans dag. Ragnheiður var uppeldisdóttir föður míns, sr. Ragnars Fjalars Lárussonar og hún vildi að faðir minn tæki við settinu og var það lengst af á skrifstofu hans á Auðarstræti 19 í Reykjavík umlukt bókum frá fyrri öldum en sr. Ragnar átti frábært fornbókasafn sem fór að meginhluta til að Hólum 2006.“ „Borðstofusettið er úr búi Bergs Thorbergs landshöfðingja. Bergur Thorberg (23. janúar 1829 -21. janúar 1886) var landshöfðingi frá 1882-1886 og var annar í röð þeirra þriggja sem gegndu landshöfðingjaembættinu. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sesselja Þórðardóttir umboðsmanns Bjarna í Sviðsholti en eftir lát hennar giftist hann Elínborgu Pétursdóttur, dóttir Pétur Péturssonar biskups. Pétur biskup var fæddur á Miklabæ í Blönduhlíð og ættaður frá Víðivöllum sem er næsti bær við Miklabæ. Sr. Björn og Guðfinna létu einn af sonum sínum heita í höfuðið á Bergi Thorberg, sá var sr. Bergur Björnsson, fyrrum prestur í Stafholti.“

Main information

Dating
1840 - 1880
Object-related numbers
Museumnumber a: BSk-5387 "Museumnumber b": 2024-1
Place
Staður: Miklibær, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Blönduhlíð, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Borðstofuborð
Keyword:
Stóll
Keyword:
Sófi

Place of origin

65°30'32.7"N 19°17'46.8"W